Beint í efni
Leita

Flensan mætt – hvað er til ráða?

Það byrjar kannski með smá hrolli og þreytu en áður en þú veist af ertu komin/n undir sæng með hita og beinverki.

Flensan er mætt.

Inflúensa, eða flensa, er veirusýking sem kemur oft skyndilega. Hiti, kuldahrollur, höfuðverkur, bein- og vöðvaverkir, mikil þreyta og hósti eru dæmigerð einkenni. Hálssærindi og nefstífla geta einnig fylgt með.

Það er engin töfralausn sem lætur flensuna hverfa á einni nóttu en sem betur fer er ýmislegt hægt að gera til að lina einkennin og gera veikindadagana bærilegri.

Dagur Andri Friðgeirsson Hjaltalín
Lyfjafræðingur og lyfsöluleyfishafi Apótekarans í Hamraborg

Finnur þú að eitthvað er að leggjast á þig?

Kitl í hálsi, hnerrar eða þessi kunnuglega tilfinning að veikindi séu á leiðinni? Þá getur verið gott að bregðast snemma við.

Við mælum með ColdZyme við fyrstu einkennum kvefs og inflúensulíkra veikinda. ColdZyme er munnúði sem myndar verndandi hjúp á slímhúð í munni og hálsi. Gott er að hefja notkun snemma og fylgja notkunarleiðbeiningum vörunnar.

Ef veikindin ná síðan yfirhöndinni taka gömlu góðu ráðin við: hvíld, nægur vökvi og meðferð við þeim einkennum sem eru að angra þig mest.

Gefðu líkamanum smá frið

Flensan er ekki rétti tíminn til að „hrista þetta bara af sér“.

Líkaminn þarf tíma og orku til að vinna á sýkingunni og góður svefn og hvíld skipta máli. Við hita og svitamyndun tapast auk þess meiri vökvi en venjulega og því er mikilvægt að drekka reglulega yfir daginn, jafnvel þótt matarlystin sé lítil.

Vatn er alltaf góður kostur en heitur drykkur getur verið einstaklega notalegur þegar hálsinn er aumur eða hóstinn farinn að gera vart við sig.

Mælum með

  • 20ml
    7ml

    ColdZyme Munnúði Gegn Kvefi

    4.198 kr.

Þegar allt er aumt

Hiti, höfuðverkur og bein- og vöðvaverkir geta gert fyrstu dagana ansi erfiða.

Parasetamól getur lækkað hita og linað verki. Íbúprófen getur einnig dregið úr hita og verkjum og hefur auk þess bólgueyðandi verkun.

Fylgdu alltaf ráðlögðum skömmtum og hafðu í huga að verkjalyf henta ekki öllum. Ef þú ert óviss um hvaða lyf hentar þér, til dæmis vegna annarra lyfja, undirliggjandi sjúkdóma eða meðgöngu, skaltu leita ráða hjá lyfjafræðingi.

Við mælum með

  • Paratabs filmhtfl 500 mg 30 stk

    Paratabs filmhtfl 500 mg 30 stk

    599 kr.
  • Panodil Hot mixtduft 500 mg 10 skammtar

    Panodil Hot mixtduft 500 mg 10 skammtar

    1.549 kr.
  • Ibufen filmhtfl 400 mg 50 stk

    Ibufen filmhtfl 400 mg 50 stk

    1.149 kr.
  • Panodil Extra 500mg/65mg  20stk

    Panodil Extra 500mg/65mg 20stk

    1.049 kr.

Þegar nefið ákveður að loka

Það er fátt jafn pirrandi og að vera loksins komin/n upp í rúm og geta svo ekki andað almennilega með nefinu.

Við mælum gjarnan með saltvatnsnefúða sem fyrsta kosti. Hann gefur slímhúðinni aukinn raka og getur hjálpað til við að losa um slím.

Ef nefstíflan er meiri getur nefúði með xýlómetazólíni, til dæmis Otrivin eða Nasogen, komið að góðum notum. Slíkir nefúðar draga saman æðar í nefslímhúðinni og minnka þannig bólgu og stíflu.

Mundu þó að fylgja leiðbeiningum um skammta og notkunartíma viðkomandi vöru. Meira er ekki alltaf betra þegar kemur að nefúðum.

Mælum með

  • 20%
    Stérimar Nefúði Hypertonic 100ml

    Stérimar Nefúði Hypertonic 100ml

    Fyrra verð: 2.498 kr.Núverandi verð: 1.998 kr.
  • Otricare Saltvatn Með Aloe Vera 50 ml

    Otricare Saltvatn Með Aloe Vera 50 ml

    1.498 kr.
  • Otrivin Menthol ukonserveret, nefúði 1 mg/ml 10 ml

    Otrivin Menthol ukonserveret, nefúði 1 mg/ml 10 ml

    1.199 kr.
  • Nasogen Normal, nefúði 1 mg/ml 10 ml

    Nasogen Normal, nefúði 1 mg/ml 10 ml

    999 kr.

Hósti? Ekki er allur hósti eins

Hósti getur verið bæði þurr og ertandi eða fylgt slími og því hentar ekki sama meðferð við öllum hósta.

Ef hóstinn er slímkenndur skiptir góð vökvainntaka máli. Slímlosandi lyf, til dæmis með asetýlsýsteini, geta hjálpað til við að þynna seigt slím svo auðveldara sé að hósta því upp.

Ef hóstinn er þurr og ertandi snýst meðferðin frekar um að róa ertinguna og halda slímhúðinni rakri. Heitir drykkir og mýkjandi vörur fyrir háls geta þá verið kærkomnar.

Ertu ekki viss um hvers konar hósta þú ert með eða hvað hentar best? Spurðu okkur í Apótekaranum og við hjálpum þér að finna réttu leiðina.

Fyrir hóstann

  • Mucolysin, freyðit 600 mg 10 stk

    Mucolysin, freyðit 600 mg 10 stk

    2.449 kr.
  • Broksil, saft 6 mg/ml 100 ml

    Broksil, saft 6 mg/ml 100 ml

    1.649 kr.
  • GAMLA APÓTEKIÐ Hóstamixtúra Með Lakkrís 200ml

    GAMLA APÓTEKIÐ Hóstamixtúra Með Lakkrís 200ml

    1.698 kr.
  • Múkósín, freyðit 200 mg 24 stk

    Múkósín, freyðit 200 mg 24 stk

    1.999 kr.
  • Benylan mixtúra 2,80 mg/ml 125 ml

    Benylan mixtúra 2,80 mg/ml 125 ml

    2.399 kr.
  • ICEHERBS Hálsmixtúra Með Lakkrís 200ml

    ICEHERBS Hálsmixtúra Lakkrís 200ml

    1.899 kr.

Og svo er það hálsinn ...

Særindi og erting í hálsi geta auðveldlega bæst við flensupakkann.

Sogtöflur geta mýkt hálsinn og linað óþægindi. Til eru margar mismunandi tegundir, til dæmis Strepsils, Septabene og Strefen, sem innihalda mismunandi virk efni og hafa því ólíka verkun.

Það borgar sig því að velja eftir einkennunum en ekki bara bragðinu sem lítur best út á hillunni. Lyfjafræðingur getur aðstoðað við að finna þann kost sem hentar þér.

Við mælum með

  • Strepsils Ingefær, sogtfl 0  24 stk

    Strepsils Ingefær, sogtfl 0 24 stk

    1.499 kr.
  • Septabene citron og honning, sogtfl 0  16 stk

    Septabene citron og honning, sogtfl 0 16 stk

    2.199 kr.
  • Strefen Honung & Citron, munnhúði 16,2 mg/ml 15 ml

    Strefen Honung & Citron, munnhúði 16,2 mg/ml 15 ml

    5.449 kr.
  • Strepsils Cool sogtfl 24 stk

    Strepsils Cool sogtfl 24 stk

    1.499 kr.

Ekki deila flensunni með vinum og vandamönnum

Þetta er ein gjöf sem enginn bað um.

Inflúensa smitast auðveldlega milli manna og því skiptir góður handþvottur máli. Hóstaðu og hnerraðu í olnbogabót og reyndu að takmarka náið samneyti við aðra á meðan veikindin standa sem hæst.

Ef þú ert með hita og slappur er best að vera heima. Það gefur líkamanum tækifæri til að jafna sig og minnkar um leið líkurnar á að næsti maður þurfi að lesa þessa grein.

Hvenær ætti að hafa samband við lækni?

Flestir ná sér af flensu án sérstakrar meðferðar. Það eru þó ákveðin einkenni sem á ekki að hunsa.

Leitaðu læknisaðstoðar ef veikindin eru alvarleg eða fara versnandi, sérstaklega ef fram koma öndunarerfiðleikar, brjóstverkur, verulegur slappleiki eða önnur einkenni sem vekja áhyggjur.

Einnig er rétt að leita ráðgjafar fyrr ef þú ert í aukinni hættu á alvarlegum fylgikvillum inflúensu, til dæmis vegna meðgöngu, hás aldurs eða ákveðinna undirliggjandi sjúkdóma.

Í ákveðnum tilfellum geta veirulyf gegn inflúensu komið til greina. Þau gagnast best þegar meðferð er hafin snemma í veikindunum og því er mikilvægt fyrir einstaklinga í áhættuhópum að leita ráðgjafar tímanlega.

Að lokum – leyfðu sænginni að vinna sína vinnu

Þegar flensan skellur á eru bestu ráðin oft líka þau einföldustu:

Hvíldu þig. Drekktu vel. Meðhöndlaðu einkennin. Og gefðu líkamanum tíma.

Það þarf ekki að þjást að óþörfu á meðan beðið er eftir að flensan gangi yfir. Rétt valin meðferð getur gert veikindadagana bærilegri og linað hita og verki, nefstíflu, hósta og hálssærindi.

Við mælum með

  • PIC Hitamælir Stafrænn Vedoclear

    PIC Hitamælir Stafrænn Vedoclear

    1.498 kr.
  • Alltest Inflúensu og Covid Próf A+B Hraðpróf

    Alltest Inflúensu og Covid Próf A+B Hraðpróf

    1.098 kr.
  • Herbimoss, munnstfl 3 mg 16 stk

    Herbimoss, munnstfl 3 mg 16 stk

    1.499 kr.
  • VOXIS engifer sykurlaus hálstöflur

    VOXIS Engifer Sykurlausar Hálstöflur 80gr.

    598 kr.

Og ef þú ert ekki viss um hvað hentar þér skaltu endilega leita ráða hjá okkur. Lyfjafræðingar Apótekarans geta hjálpað þér að velja meðferð út frá þínum einkennum og farið yfir hvort hún henti með öðrum lyfjum sem þú tekur.

Góður bati!

Dagur Andri Friðgeirsson Hjaltalín
Flensan mætt – hvað er til ráða? - Apótekarinn