Eftirfarandi skilmálar gilda um kaup á vöru og þjónustu á vefsvæðinu www.apotekarinn.is og er vefsvæði í eigu Lyfja og heilsu ehf. þar sem almenningur getur verslað smávöru og einnig séð rafrænar lyfjaávísanir sína í lyfjagátt í tölvu eða snjalltæki með rafrænum skilríkjum. Ásamt kaupum á vörum er einnig hægt að panta lyfseðilsskyld lyf og lausasölulyf.
Skilmálar skilgreina réttindi og skyldur Apótekarans og kaupanda á vörum og þjónustu vefsvæðis, þar sem skilmálar eru samþykktir með staðfestingu á kaupum og greiðslu fyrir viðskipti. Notandi þarf að samþykkja tilgreinda notkunarskilmála varðandi vefsvæðið áður en sala fer fram. Athugið að skilmálar þessir geta breyst með tíð og tíma og eru notendur vinsamlegast beðnir um að kynna sér skilmálana reglulega.
Öll viðskipti eru trúnaðarmál og tryggir Apótekarinn viðskiptavinum sínum örugg viðskipti á netinu.
Skilgreiningar
Seljandi er Lyf og heilsa ehf., kt. 650299-2649, Síðumúla 20, 108 Reykjavík.
Kaupandi er sá aðili sem er skráður kaupandi á reikningi og verður kaupandi að vera a.m.k. 16 ára.
Innskráning
Innskráning með rafrænu skilríki er skilyrði við kaup á ávísunarskyldum lyfjum. Útskráning gerist sjálfkrafa eftir 15 mínútur. Notandi ber sjálfur ábyrgð á að þriðji aðili komist ekki í tölvu eða síma þar sem viðkomandi er skráður inn á vefsvæðið.
Skilaréttur og endurgreiðslur
Hægt er að skipta og skila vörum í verslun okkar í Kringlunni eða hafa samband við vefverslun á apotekarinn@apotekarinn.is, enginn skilaréttur er á lyfjum nema ef um mistök af hálfu Apótekarans sé að ræða. Lyf og sendingarkostnaður er ekki endurgreiddur nema varan hafi skemmst í flutningum. Í þeim tilvikum er viðkomandi beðinn um að senda vöruna til baka á kostnað Apótekarans. Endurgreiðsla fer síðan fram þegar varan hefur skilað sér til Apótekarans.
Almennur skilaréttur á vörum, öðrum en lyfjum eru 30 dagar gegn framvísun kassakvittunar. Aðeins er tekið við vörum í upprunalegu ástandi, þ.e. í óopnuðum umbúðum og í sama ásigkomulagi og þær voru við afhendingu. Við endurgreiðslu á sama hátt og viðskiptavinur greiddi fyrir kaup, með bakfærslu á kreditkort eða innleggi á baknareikning viðskiptavinar.
Pantanir á lyfjum
Afgreiðsla pantana á lyfjum í vefverslun er skv. reglugerð um lyfjaávisanir og afhendingu lyfja nr. 740/2020” og reglugerð um lyfsöluleyfi og lyfjabúðir nr. 1340/2022. Þegar pöntun er móttekin er sendur tölvupóstur til staðfestingar og annar tölvupóstur er sendur þegar pöntunin er tilbúin til afhendingar/póstsendingar. Ef pöntun inniheldur vöru sem er ekki til í apótekinu og ófáanlegt í heildsölu er send tilkynning með tölvupósti eða haft samband símleiðis við viðkomandi. Réttur er áskilinn til að hafa samband við einstaklinga símleiðis vegna annara frávika í pöntunum.
Heimsendingar
Lyf eru aðeins er send á heimilisföng staðsett á Íslandi og á lögheimili kaupanda, aðrar vörur er hægt að fá sendar á pósthús og í póstbox. Við afhendingu á lyfjum er farið fram á rafræna auðkenningu. Lyf eru aðeins afhent skráðum viðtakanda. Pósturinn sér um allar heimsendingar.
Afhendingartími
Pantanir sem sóttar eru í Kringluna eru tilbúnar til afhendingar samdægurs, ef pantað er fyrir kl.12 frá því að pöntun berst, á opnunartíma verslunar (sjá hér). Viðkomandi fær sendan tölvupóst þegar pöntun er tilbúin til afhendingar eða farin í heimsendingu. Heimsendingar á höfuðborgarsvæðinu eru afhentar samdægurs alla virka daga ef pantað er fyrir kl. 12, annars næsta virka dag. Póstsendingar sem fara út á land sem pantaðar eru fyrir kl.12 fara í póst samdægurs alla virka daga. Ef vara er uppseld í verslun, er hætt við afgreiðslu á þeim vörum í pöntuninni og send tilkynning til viðkomandi með tölvupósti eða haft samband símleiðis.
Sendingarmöguleikar og kostnaður
- Sækja í Kringluna- Frítt
- Heimsending á lyfjum á höfuðborgarsvæðinu - Frítt
- Heimsending Íslandspóstur pakki heim - 1.290 kr. *
- Sækja á Pósthús - 990 kr. *
- Póstbox - 990 kr. *
Enginn sendingarkostnaður ef pöntun er yfir 11.900 kr.
* Ath að það eru mismunandi sendingarmöguleikar í boði eftir staðsetningu.
Greiðslumöguleikar
Í netverslun Apótekarans er boðið uppá nokkrar greiðsluleiðir, þ.e. öll helstu greiðslukort þar sem greiðslur fara í gegnum örugga greiðslugátt Teya og með Apple Pay.
Verð og verðbreytingar
Öll verð eru í íslenskum krónum (ISO 4217). Verð eru birt með virðisaukaskatti með fyrirvara um innsláttarvillur, prentvillur og myndvillur. Þá áskilur Apótekarinn sér þann rétt til að hætta við viðskipti á vörum í þeim tilvikum sem áður tilgreindar villur eiga sér stað. Verð geta breyst fyrirvaralaust.
Persónuvernd og trúnaður
Apótekarinn meðhöndlar allar upplýsingar sem trúnaðarmál og eru þær eingöngu nýttar til þeirra viðskipta sem þær eru gefnar fyrir.
Notandi samþykkir að geymdar séu upplýsingar um notanda sem viðkomandi skráir á síðunni t.d. í stillingum og varðandi heimsendingar (nafn, kennitala, heimilisfang, póstnúmer, staður, farsími, heimasími, netfang). Einnig er pantanasaga og kvittanir geymdar. Kreditkortaupplýsingar eru geymdar hjá Teya Iceland hf. þegar greitt er með kreditkorti. Engar kortaupplýsingar eru geymdar hjá Apótekaranum. Upplýsingar sem kaupandi gefur upp eru ekki afhentar til þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.
Öryggi
Apótekarinn leggur sig fram við að gæta fyllsta öryggis við viðskipti í gegnum vefsvæðið www.apotekarinn.is . Allar greiðslur með greiðslukortum eða öðrum greiðsluleiðum fara í gegnum greiðslugátt þess fyrirtækis.
Viðskiptavinur skal gæta þess að vera ekki á opnum þráðlausum netum á almenningsstöðum þegar viðskipti með lyfjaupplýsingar eiga sér stað.
Varnarþing
Þessi samningur er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
Notkun á síðunni
Ekki er leyft að keyra nein forrit eða nota aðrar aðferðir til að reyna að afrita síðuna, fylgjast með, nálgast upplýsingar frá eða stjórna síðunni. Notandi samþykkir að nota síðuna með þeim hætti að ekki fylgi notanda óeðlilegt álag á tölvubúnað eða annað sem síðan tengist eða byggir á. Ef grunur leikur á að notandi fari ekki eftir ofangreindum skilmálum, leyfum við okkur að loka fyrir aðgang viðkomandi að síðunni.
Takmörkun á ábyrgð
Apótekarinn ber ekki ábyrgð á vankvæðum sem geta orsakast vegna bilana í tölvubúnaði sem vefsvæðið tengist eða notast við sem getur valdið því að vefsíðan virkar ekki sem skyldi. Einnig tökum við ekki ábyrgð á vankvæðum sem getað orsakast vegna tölvubúnaðar, sem notandi notar þegar viðkomandi tengist vefsvæðinu. Ekki er tekin ábyrgð á vandamálum vegna rangra upplýsinga sem notandi gefur upp.
Höfundaréttur og vörumerki
Innihald síðunnar, myndir, merki, ljósmyndir, grafík, hugbúnaður og textar eru í eigu Lyfja og heilsu eða í notkun samkvæmt leyfi frá fyrirtækjum sem Lyf og heilsa er í viðskiptum við. Leyfilegt er að sækja eða prenta út upplýsingar af síðunni til einkanota en ekki í viðskiptalegum tilgangi. Upplýsingar sem eru birtar á síðunni geta breyst án fyrirvara.
Fyrirtækjaupplýsingar og staðsetning netverslunar
Lyf og heilsa ehf.
Síðumúla 20
108 Reykjavík
Sími: 522-5800
Netfang: apotekarinn@apotekarinn.is
VSK nr: 61550
Apótekarinn Kringlunni
103 Reykjavík
Sími: 569 9970
Netfang: apotekarinn@apotekarinn.is
Skilmálar þessir gilda frá 01.04.2026