

Um Augastað
Gleraugnaverslunin Augastaður er hluti af Apótekaranum.
Augastaður hefur í áraraðir hjálpað fólki að finna gleraugu sem sameina gæði, þægindi og stíl.
Verslunin er staðsett á 2 stöðum á höfuðborgarsvæðinu.
Mjódd
Álfabakka 14
109 Reykjavík
Firði
Fjarðargötu 13-15
220 Hafnarfirði

Góð ráð við vali á umgjörð
- Rétt breidd skiptir máli
Umgjörðin ætti að vera svipuð að breidd og andlitið við gagnaugun og sitja þægilega án þess að valda óþægindum. Of þröng umgjörð getur þrýst við gagnaugun, en ef hún er of breið getur hún verið óstöðug og auðveldlega runnið til. - Finndu rétt form
Lögun umgjarðarinnar getur breytt heildarsvipnum meira en maður heldur. Hvassar umgjarðir gefa oft meiri skerpu, á meðan rúnaðar mýkja svipinn. Prófaðu ólík form og finndu það sem hentar þér best. - Litir geta skipt sköpum
Litur umgjarðarinnar getur haft mikil áhrif á heildarsvipinn. Hlýir tónar fara gjarnan vel með hlýjum húðtónum og kaldari tónar með köldum. Það er þó engin ein regla sem gildir fyrir alla og því um að gera að prófa ólíka liti og finna þá sem fara þér best. - Finndu þinn stíl
Þykkar, dökkar eða litríkar umgjarðir verða gjarnan meira áberandi, á meðan fíngerðar málmumgjarðir, ljósari tónar og gegnsæjar umgjarðir gefa mýkra og látlausara yfirbragð. Að lokum snýst valið um þinn persónulega stíl og hvaða umgjörð þér líður best með.
Vinsæl vörumerki

Victoria Beckham

Marc Jacobs

Boss

Fleye Copenhagen

Gant

Timberland

Tommy Hilfiger

Modo
