
ColdZyme Munnúði Gegn Kvefi
ColdZymeⓇ er munnúði sem verndar gegn veirum sem valda kvefi og inflúensulíkum einkennum í efri hluta öndunarfæra.
ColdZymeⓇ er munnúði sem verndar gegn veirum sem valda kvefi og inflúensulíkum einkennum í efri hluta öndunarfæra. Áhrifin koma fljótt fram með því að mynda verndandi hjúp í slímhúð í munnholi og hálsi sem kemur í veg fyrir að veirur nái bólfestu og valdi sýkingu. Hin einstaka samsetning stuðlar ekki aðeins að því að koma í veg fyrir kvef, heldur dregur einnig úr einkennum ef þú hefur þegar veikst.
Glyseról, vatn, náttúrulegt ensím - trypsín úr þorski, etanól (<1%), kalsíumklóríð, trómetamól og mentól. Sykurlaust, án rotvarnarefna og laktósa
Opnaðu munninn og beindu stútnum að kokinu.Ýttu á dæluna og úðaðu 2 sinnum (1 skammtur) á tveggja tíma fresti. Nota má allt að 6 skammta á dag, meðan á útsetningu fyrir veirunni í efri hluta öndunarfæra stendur eða þar til einkenni hafa minnkað. ColdZymeⓇ má nota í lengri tíma þar sem engin hætta er á ofskömmtun.












