
Strefen Honung & Citron, munnhúði 16,2 mg/ml 15 ml
Strefen Honung & Citron er notað til að draga tímabundið úr einkennum óþæginda í hálsi eins og
eymslum, verk og bólgu í hálsi ásamt erfiðleikum við að kyngja hjá fullorðnum 18 ára og eldri.
Virka innihaldsefnið er flurbiprofen. Flurbiprofen tilheyrir flokki lyfja sem kallast bólgueyðandi gigtarlyf (NSAID), sem verka með því að breyta því hvernig líkaminn bregst við sársauka, bólgu og hita.
Ráðlagður skammtur Fullorðnir 18 ára og eldri: Einn skammtur (3 úðar) aftast í hálsinn á 3-6 klst. fresti eftir þörfum, að hámarki 5 skammtar á 24 klst. tímabili. Einn skammtur (3 úðar) inniheldur 8,75 mg af flurbiprofeni. Ekki skal nota lyfið hjá börnum eða unglingum yngri en 18 ára. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á sérlyfjaskrá