
Broksil, saft 6 mg/ml 100 ml
Broksil er slímlosandi lyf.
Broksil er slímlosandi lyf. Það er notað sem slímleysandi viðbót við meðferð með bakteríulyfjum við
öndunarfærasýkingum þegar mikil slímmyndun í lungnaberkjum á sér stað.
Leitið til læknis ef sjúkdómseinkenni versna eða lagast ekki innan 7 daga.
Notið lyfið alltaf eins og læknirinn eða lyfjafræðingur hefur sagt til um. Ef ekki er ljóst hvernig nota á
lyfið skal leita upplýsinga hjá lækninum eða lyfjafræðingi.
Meðferð skal ekki vara lengur en 5-7 daga án samráðs við lækni.
Ráðlagður skammtur er:
3
Fullorðnir og unglingar eldri en 12 ára: 10 ml 2 sinnum á dag.
Þessi skammtastærð er viðeigandi gegn bráðri öndunarfæratruflun og í upphafsmeðferð gegn
langvinnum einkennum í allt að 14 daga.
Börn á aldrinum 6 til 12 ára: 5 ml 2-3 sinnum á dag.
Börn á aldrinum 2-6 ára: 2,5 ml 3 sinnum á dag.
Börn á aldrinum 1-2 ára: 2,5 ml 2 sinnum á dag.
Þessar skammtastærðir eiga við í upphafsmeðferð, skammtana má minnka um helming að 14 dögum
liðnum.
Ef þú ert með alvarlega skerta nýrna- eða lifrarstarfsemi skaltu ráðfæra þig við lækninn um viðeigandi
skammtastærðir.
Broksil skal helst taka inn eftir máltíð.
Umbúðirnar innihalda mæliglas með kvarða til að auðvelda rétta skömmtun.
Athugið: Gert er ráð fyrir auknu flæði slíms og þess vegna geta bæði hósti og hráki aukist.Sjá nánari upplýsingar um lyfið á sérlyfjaskrá











