Beint í efni
Leita

Bólusetningar hjá Apótekaranum

Við hjá Apótekaranum erum ánægð að geta boðið upp á inflúensubólusetningu í apótekum okkar og lagt þannig okkar af mörkum til betri heilsu landsmanna. Nú geturðu fengið inflúensubólusetningu í apótekum Apótekarans, fljótt og án tímapöntunar.

Lyfjafræðingar Apótekarans bólusetja einstaklinga 18 ára og eldri sem tilheyra forgangshópum samkvæmt tilmælum sóttvarnalæknis.

Hverjir eru í forgangi fyrir inflúensubólusetningu?

  • Allir 60 ára og eldri.
  • Fullorðnir með langvinna hjarta-, lungna-, nýrna- eða lifrarsjúkdóma, offitu, sykursýki, illkynja sjúkdóma eða aðra ónæmisbælandi sjúkdóma.
  • Heilbrigðisstarfsfólk sem annast einstaklinga í ofangreindum áhættuhópum.
  • Fólk sem vegna starfs síns er í aukinni hættu á samsmiti árlegrar inflúensu og fuglainflúensu, sjá nánar [hlekkur á leiðbeiningar sóttvarnalæknis].

Barnshafandi konum er bent á að leita til mæðraverndar vegna inflúensubólusetningar og við beinum foreldrum barna á aldrinum 6 mánaða til 5 ára að leita á sína heilsugæslu.

Engin tímapöntun – komdu bara við

Ekki þarf að bóka tíma. Bólusett er alla virka daga á eftirtöldum stöðum:

  • Apótekarinn Austurveri: kl. 9–14
  • Apótekarinn Granda: kl. 10–18
  • Apótekarinn Kirkjusandi: kl. 9–13
  • Apótekarinn Selfossi: kl. 11–15
  • Apótekarinn Vestmannaeyjum: kl. 9–13

Gott að vita:

  • Þú þarft ekki lyfseðil frá lækni.
  • Hafa þarf skilríki meðferðis.
  • Bólusetningin tekur um 15 mínútur.
  • Bólusetningin er gjaldfrjáls fyrir forgangshópa.
  • Notað er bóluefnið Influvac.

Hvað kostar bólusetning?

Bólusetning gegn inflúensu er einstaklinum í forgangshópi þeim að kostnaðarlausu

Aðrir þurfa að greiða fyrir inflúensubóluefni kr. Xxx

Bólusetningar hjá Apótekaranum - Apótekarinn