Fjölvítamín
Best að taka með mat til að fyrirbyggja ógleði og bæta upptöku.
B-complex
Best að taka á morgnana þar sem B-vítamín geta haft orkugefandi áhrif.
C-vítamín
Hentar vel á morgnana og getur einnig hjálpað upptöku járns.
Járn
Best að taka á morgnana á tóman maga þar sem upptakan er þá betri. C-vítamín getur bæði aukið upptöku og minnkað óþægindi í maganum (minnkar aukaverkanir eins og hægðatregðu).
Gott að hafa í huga:
Forðastu að taka járn með kaffi
Ekki taka með magnesíum eða sinki (láttu líða um 2 klst.)
Ef járn veldur ógleði er betra að taka það með mat en að sleppa því alveg.
Sink (Zinc)
Best að taka á tómum maga á morgnana.
Ekki taka með járni – láttu líða um 2 klst. á milli.
Góðgerlar (probiotics)
Best að taka á morgnana á tóman maga.
Saffran (Saffron)
Oft tekið á morgnana þar sem það getur haft jákvæð áhrif á skap og orku (serótónín og dópamín).