
BetterYou C-vítamín munnúði 50ml
C vítamín munnúðinn frá Better You inniheldur að auki grænt te, B2 vítamín sem er gríðarlega mikilvægt vítamín fyrir orkubúskap fruma og selen sem er eitt hinna svokölluðu andoxunar næringarefna líkamans
C vítamín er án efa lífsnauðsynlegt vítamín og gegnir fjölmörgum mikilvægum hlutverkum í starfsemi líkamans. Flestir þekkja hlutverk þess fyrir ónæmiskerfið og taka það inn sem bætiefni til að efla viðnám líkamans gegn hinum ýmsu kvillum. C vítamín er einnig mikilvægt fyrir myndun kollagens sem er eitt af byggingarefnum líkamans, fyrir betri upptöku og nýtingu á járni úr fæðunni og spilar stórt hlutverk sem verndandi andoxunarefni.
C vítamín blandan frá Better You er frábrugðin flestum C vítamínum á markaðnum þar sem það er í munnúðaformi sem gerir það afar hentugt í notkun. Munnúðinn skilar næringarefnum beint út í blóðrásina í gegnum slímhúð í munni.
Fyrir 1 árs og eldri
Vegan, sykur-, glúten- og hveitilaust og án litarefna
Óhætt að nota á meðgöngu og meðan á brjóstagjöf stendur
Náttúrulegt kirsuberja- og granateplabragð
Umbúðir gerðar úr endurunnu plasti úr sjónum
1-5 ára 1 sprey, 6-12 ára 2 sprey, 11-14 ára 3 sprey á dag, 15-17 ára 4 sprey, 18 ára og eldri 5 sprey á dag. Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um. Vítamín og bætiefni eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða að koma í veg fyrir þá og eiga ekki að koma í stað fjölbreyttrar og hollrar fæðu. Geymist þar sem börn hvorki sjá né ná til. Ábyrgðaraðili: Artasan ehf