
Guli Miðinn C-500 100stk
Andoxun, C-vítamín, Hár, Húð, Ónæmiskerfið
Inniheldur C-vítamín eða askorbínsýra eins og það heitir á fræðimáli, og er vatnsleysanlegt.
Inniheldur einnig Rútín og Bíóflavóníða með rósaberjum.
Ýmislegt bendir til að þörf mannsins fyrir C-vítamín hafi aukist samhliða aukinni iðnþróun og hinum neikvæða fylgifiski hennar, þ.e. mengun.
Hlutverk C-vítamíns til viðhalds heilbrigði líkamans er margþætt. Það hefur mikilvægu hlutverki að gegna við myndun bandvefs, er stór þáttur í vexti og heilbrigði æða, beina, góms og tanna ásamt því að auka frásog járns.
C-vítamín hjálpar sárum að gróa og eykur viðnám líkamans gegn sýkingum.
Líkaminn þarfnast aukins C-vítamíns þegar hann er undir andlegu eða líkamlegu álagi.
C-vítamín er andoxunarefni sem ver frumur líkamans gegn skaðlegum áhrifum stakeinda, en það eru úrfellingarefni sem verða til við efnaskipti í líkamanum.
C vítamín er gott fyrir húðina.
1 tafla með mat. Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um. Vítamín og bætiefni eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða að koma í veg fyrir þá og eiga ekki að koma í stað fjölbreyttrar og hollrar fæðu. Geymist þar sem börn hvorki sjá né ná til. Ábyrgðaraðili: Heilsa