Með því að vera meðvituð um starfsemi líkamans og bera ábyrgð á heilsu okkar getum við oft á tíðum gripið inní og komið í veg fyrir þróun sjúkdóma. Apótekarinn leggur sérstaka áherslu á forvarnir í átt að betri heilsu. Við bjóðum upp á þrenns konar mælingar, blóðþrýstings-, blóðfitu- og blóðsykursmælingar sem geta gefið vísbendingar um líkamsástand þitt til framtíðar.