
Vöruflokkar

Elizabeth Arden
Óhætt er að segja að Elizabeth Arden hafi verið goðsagnarkenndur frumkvöðull sem kom á fót ameríska snyrtivöruheiminum eins og við þekkjum hann í dag. Hún fæddist sem Florence Nightingale Graham og ferðaðist frá útjaðri Kanada til New York, þar sem hún opnaði fyrstu „Red Door“-snyrtistofuna á Fifth Avenue árið 1910.
Grundvallarviðhorf Elizabeth Arden voru þau að fegurð væri samspil náttúrunnar og vísinda, til að framkalla bestu eiginleika konunnar. Hún lifði eftir möntru sinni; það að vera falleg væri frumburðarréttur hverrar konu.














