Bólusetning við inflúensu besta vörnin
Stökkbreytingar sem verða á erfðaefni inflúensuveira geta haft áhrif hvernig veiran smitast og hvernig ónæmiskerfi líkamans þekkir hana. Þessar breytingar eru algengar og eru ástæða þess að inflúensan gengur yfir árlega og hver einstaklingur getur smitast aftur og aftur. Vegna þess er mælt með bólusetningu árlega. Þessar stökkbreytingar geta einnig valdið því að nýjir stofnar inflúensuveirunnar verða til.
Besta vörnin gegn inflúensu er árleg bólusetning sem veitir um 60-90% vörn gegn sýkingu. Bóluefnið er uppfært árlega til að veita sem besta vörn gegn þeim veirustofnum sem búist er við að verði algengastir hverju sinni. Þó bólusetningin komi ekki alltaf í veg fyrir smit getur hún dregið verulega úr hættu á alvarlegum veikindum og fylgikvillum t.d. lungnabólgu. Bólusetning er einnig mikilvæg leið til þess að draga úr útbreiðslu inflúensu og vernda viðkvæma einstaklinga í samfélaginu. Eftir bólusetningu næst ónæmissvar yfirleitt innan 2 til 3 vikna.





