
Septabene, munnhúði 0 30 ml
Septabene munnholsúði er bólgueyðandi, verkjastillandi og sótthreinsandi lyf til staðbundinnar
notkunar í munnholi. Munnholsúðinn sótthreinsar munn og háls og dregur úr ummerkjum bólgu í
hálsi, svo sem verk, roða, þrota, hita og skertri virkni.
Septabene munnholsúði er notaður handa fullorðnum, unglingum og börnum eldri en 6 ára, til
staðbundinnar og stuttrar bólgueyðandi, verkjastillandi og sótthreinsandi meðferðar:
- við ertingu í hálsi, munni og tannholdi og
- fyrir og eftir tanndrátt.
Fullorðnir
Fyrir stakan skammt á að þrýsta einu sinni eða tvisvar á úðadæluna. Þetta má endurtaka á 2 klst.
fresti, 3-5 sinnum á dag.Notkun handa börnum og unglingum
Unglingar eldri en 12 ára
Fyrir stakan skammt á að þrýsta einu sinni eða tvisvar á úðadæluna. Þetta má endurtaka á 2 klst.
fresti, 3-5 sinnum á dag.
Börn á aldrinum 6 til 12 ára
Fyrir stakan skammt á að þrýsta einu sinni á úðadæluna. Þetta má endurtaka á 2 klst. fresti, 3-
5 sinnum á dag. Fullorðinn þarf að fylgjast með notkun munnholsúðans hjá börnum á aldrinum 6 til
12 ára.
Börn yngri en 6 ára mega ekki nota Septabene munnholsúða.Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir.
Sjá nánari upplýsingar um lyfið á sérlyfjaskrá











