
Imogaze+ hylki 240 mg 30 stk mjúk hylki
Lyfið er notað við einkennum vindgangs sem veldur því að kviðurinn er þaninn.
Imogaze verkar með því að rjúfa loftbólur sem sitja fastar í meltingarveginum og valda uppþembu. Lyfið er notað við einkennum vindgangs sem veldur því að kviðurinn er þaninn.
Venjulegur skammtur er: Þeir sem eru 15 ára eða eldri: Taka skal eitt hylki í lok hverrar meginmáltíðar. Gleypið hylkið með stóru glasi af vatni. Ekki má taka fleiri en 3 hylki á sólarhring. Ekki má nota hylkin lengur en í 10 daga. Ekki má nota Imogaze handa börnum sem eru yngri en 15 ára. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á sérlyfjaskrá