
Magnesia Dak 500mg 100stk
Til meðferðar við vægum og tilfallandi einkennum tengdum maga- og vélindabakflæðissjúkdómi. Til meðferðar við hægðatregðu þegar lífsstílsbreytingar nægja ekki til einar og sér.
Magnesia DAK hefur hægðalosandi verkun og hlutleysir magasýru.
Magnesia DAK er notað við:
- hægðatregðu þegar lífsstílsbreytingar nægja ekki til
- slímhúðarbólgu í vélinda
- mikilli magasýru sem veldur einkennum á borð við
- brjóstsviða
- sýrubakflæði og sviðatilfinningu í maga
Hver tafla inniheldur 500 mg létt magnesíumoxíð, sem magnesíumhýdroxíð. Töflukjarni: Örkristallaður sellulósi Katöflusterkja Magnesíumsterat Kísilkvoða, vatnsfrí Póvídón Filmuhúð: Hýprómellósi Própýlenglýkól Talkúm
Fullorðnir: Sem sýrubindandi lyf: 1-2 töflur eftir þörfum. Við hægðatregðu: 2-3 töflur eftir þörfum. Lyfið skal ekki gefið börnum yngri en 15 ára nema að ráði læknis. Magnesia DAK filmuhúðaðar töflur skal taka inn með nægum vökva. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á sérlyfjaskrá