








Armani My Way Eau de Parfum Intense 30ml
My Way Intense er dýpri og ríkari útgáfa af My Way frá Giorgio Armani, með björtum hvítum blómum og hlýjum, ávanabindandi viðargrunni. Appelsínublóm, túberósa, sandelviður og vanilla móta ilminn.
My Way Intense byggir á hugmyndinni um upplifanir og tengsl en með meiri dýpt og styrk. Ilmurinn er skapaður fyrir opna, forvitna og sjálfstæða konu sem vill upplifa heiminn á sinn hátt.
Björt appelsínublóm gefa ilminum glóandi opnun. Í hjartanu ríkir túberósa frá Indlandi með ríkri, blómlegri áferð. Í grunninum mætast sandelviður frá Nýju-Kaledóníu og hlý vanilla frá Madagaskar og mynda langvarandi, mjúkan og fágaðan slóða
My Way-flaskan er hönnuð sem tákn um tengsl og upplifanir og er áfyllanleg.
Berið ilminn á púlspunkta, til dæmis úlnliði, innanverða olnboga og háls.















