

Narciso R For Her Pure Musc Blanc edp Intense 50ml
Hreinn og fágaður dömuilmur frá Narciso Rodriguez með jasmínu, mjúkum moskus, sedrusviði og vanillu. Hlýr og seiðandi ilmur sem sameinar ferskleika hvítra blóma og mjúka, kremkennda tóna.
For Her Pure Musc Blanc Eau de Parfum Intense er ný viðbót í vinsælu For Her línuna frá Narciso Rodriguez. Ilmurinn er innblásinn af hreinleika og mýkt og býður upp á ríkulegri og hlýrri túlkun á upprunalega Pure Musc ilminum.
Ilmurinn opnast með ferskum, hreinum tónum og fíngerðri jasmínu, hjartað er musk sem einkennir Narciso Rodriguez. Hlýr sedrusviður og mjúk vanilla mynda kremkenndan grunn sem gefur ilminum dýpt og seiðandi yfirbragð.
Pure Musc Blanc er tilvalinn fyrir þær sem kunna að meta hreina, mjúka og fágaða ilmi. Hann hentar vel einn og sér en einnig má nota hann með öðrum ilmum úr For Her línunni til að skapa persónulegan ilm.
ALCOHOL, PARFUM (FRAGRANCE), TETRAMETHYL ACETYLOCTAHYDRONAPHTHALENES, AQUA (WATER), DIPROPYLENE GLYCOL, VANILLIN, HEXADECANOLACTONE, LINALYL ACETATE, BUTYL METHOXYDIBENZOYLMETHANE, ETHYLHEXYL SALICYLATE, ACETYL CEDRENE, AMYL SALICYLATE, LIMONENE, COUMARIN, GERANYL ACETATE, CITRUS AURANTIUM BERGAMIA (BERGAMOT) PEEL OIL, HEXYL CINNAMAL, ALPHA-ISOMETHYL IONONE, DIMETHYL PHENETHYL ACETATE, TRIMETHYLBENZENEPROPANOL, CITRUS LIMON (LEMON) PEEL OIL, CITRONELLOL, PINENE, LINALOOL, CITRUS AURANTIUM PEEL OIL, CINNAMYL ALCOHOL, BENZALDEHYDE, CEDRUS ATLANTICA OIL/EXTRACT, TERPINEOL, JASMINE OIL/EXTRACT, CITRAL, ROSE KETONES, TERPINOLENE.
Úðið á hreina, þurra húð úr smá fjarlægð, gjarnan á háls og úlnliði. Endurtakið eftir þörfum yfir daginn til að fríska upp á ilminn.






















