Algengar orsakir hægðatregðu eru:
- Skortur á trefjum í fæðu
- Ónóg vökvainntaka
- Lítil hreyfing
- Hægðaþörf ekki sinnt
- Óreglulegar máltíðir
- Streita, kvíði eða þunglyndi
- Fylgikvilli sjúkdóma
- Aukaverkanir lyfja (lyfjaávísanaskyld lyf, lausasölulyf, náttúrulyf og fæðubótarefni)
Einfaldar lífstílsbreytingar geta skipt sköpum í baráttu við hægðatregðu en í þessari grein förum við yfir hvaða vörur og lausasölulyf er hægt að nota til meðferðar við hægðatregðu. Við minnum lesendur á að lesa ávallt fylgiseðil lyfja fyrir inntöku.














