

Um Värn
Värn er danskt vörumerki sem leggur áherslu á góða þarmaflóru og vellíðan á ólíkum æviskeiðum. Vörulínan byggir á rannsóknum á þarmaflóru og inniheldur sérvalda bakteríustofna sem eru þróaðir með það að markmiði að styðja við jafnvægi í meltingarveginum.
Värn hefur á undanförnum árum notið vaxandi vinsælda á Norðurlöndum og býður upp á fjölbreyttar vörur sem taka mið af ólíkum þörfum líkamans, meðal annars eftir aldri og lífsskeiði.
Hugmyndafræði Värn byggir á því að þarmaflóran sé mikilvægur hluti af almennri vellíðan. Með markvissri samsetningu bakteríustofna vill Värn gera fólki auðveldara að sinna þarmaflórunni og styðja við heilbrigðan og virkan lífsstíl.




