

TRIND Fungal Nails Serum
1. Hjálpar að koma í veg fyrir að sveppurinn breiðist frekar um nöglina. 2. Endurbyggir og styrkir nöglina 3. bætir ástand naglarinnar
TRIND Fungal Serum gengur inn í nöglina og kemur þannig í veg fyrir að sveppir nái að dreifa sér um nöglina eða yfir á aðrar neglur. Serumið inniheldur hydrolyzed keratin sem endurbyggir, bætir og styrkir byggingarvef ósýkta svæðis naglarinnar. Sjáanlegur árangur á eingis tveim vikum. Inniheldur E vítamín og B5.
Inniheldur hydrolyzed keratin sem endurbyggir, bætir og styrkir byggingarvef ósýkta svæðis naglarinnar. Inniheldur einnig E vítamín og B5.
Berið einn dropa á hreina nögl, tvisvar daglega. Nuddið mjúklega inn í nöglina, á naglaböndin og undir naglbrúnina og látið þorna. Endurtakið þetta daglega í 4 vikur. Eftir 4 vikur er efnið notað einu sinni á dag næstu 6-8 mánuðina fyrir neglur á höndum og 8-12 mánuði á táneglur eða þar til sveppir hafa horfið. Snertið ekki neglurnar með TRIND Nail Fungal Serum dropateljaranum. Til að koma í veg fyrir sveppi í nöglum ráðleggjum við:
• Haldið nöglum stuttum.
• Varist að skaða eða erta neglurnar.
• Notið sér áhöld fyrir neglur með sveppi.
• Hreinsið vandlega áhöld sem notuð eru á neglur.
• Þvoið fætur vandlega, gætið að fjarlægja sápuleifar alveg.
• Þerrið neglur og húð á milli tánna vandlega.
• Skiftið oft um sokka.
• Notið skó sem þrengja ekki að tánum.
• Veljið ykkur skó úr efni sem andar.
• Hreinsið skóna með vörum sem vinna gegn sveppum.
• Skiptið um skó daglega.
• Sótthreinsið sturtuna reglulega.
• Forðist að ganga berfætt á fjölförnum stöðum.
Sé TRIND Fungal Nail Serum notað með TRIND Nail Repair fæst enn betri árangur.
TRIND Nail Repair má engöngu bera á neglur sem ekki eru orðnar mjög illa farnar. Þegar þessar tvær vörur eru notaðar saman þarf að gæta að:
1. Berið 1 dropa af TRIND Fungal Nail Serumá hreina nögl um morguninn. Nuddið mjúklega inní nöglina, á naglaböndin, undir naglbrúnina og látið þorna. 2. Berið eina umferð af Trind Nail Repair á nöglina. Gætið að láta efnið ekki snerta naglaböndin.
3. Fjarlægið TRIND Nail Repair um kvöldið og berið einungis serumið á eins og líst er hér að ofan.
4. Endurtakið þetta í 2 vikur. Eftir þann tíma er serumið borið á tvisvar daglega, en Nail Repair einu sinni í viku, og þá tekið af aftur um kvöldið sama dag.
5. Eftir 4 vikur er serumið notað einu sinni á dag, og Nail Repair einu sinni í viku næstu 6-8 mánuðina fyrir táneglur eða þar til sveppir eru horfnir. Eftir notkun skal þrífa brún flöskunnar.











