
SHISEIDO Yane Hake Precision Eye Brush
Hágæða bursti sem handgerður er í Japan.
Yane Hake-burstinn er nákvæmur og fíngerður og hentar vel í öll smáatriði. Burstann má nota í augabrúnir, augnlínufarða, augnskugga og varalit. Hann hentar einnig vel til að fela og hreinsa lítil atriði með hyljara.
100% synthetic fibres.
Burstinn er sérstaklega hannaður með oddi. Leggið hann að andliti með 90 gráðu halla til að fá fína línu en með 45 gráðu halla fyrir þykkari línu. Hreinsun: Best er að þurrka burstanum á handklæði eða bréfþurrku til að þurrka sem mest af vörunni úr burstanum áður en önnur vara er notuð. Til að djúphreinsa burstann er gott að nota milda sápu eða andlitshreinsi og volgt vatn. Skolið vel og þurrkið í handklæði. Leggið á handklæði þar til burstinn er alveg þurr áður en hann er notaður aftur. Ekki leyfa burstanum að liggja lengi í hreinsivökva eða vatni.