
Pharmaceris T Oily Deeply Cleansing Foam 150ml
T-Puri sebostatic frískandi hreinsifroða fyrir blandaða og feita húð og þá sem fá bólur eða fílapensla. Góð fyrir þá sem eru í lyfjameðferð við bólum. Án sápu, SLES og SLS.
T – Fyrir feita og blandaða húð sem fær bólur (acne). Þessi lína er sérstaklega hönnuð til að meðhöndla húð sem fær bólur. Megin innihaldsefni hennar hjálpa til við að koma jafnvægi á fituframleiðslu húðarinnar. Vörurnar eru bakteríudrepandi og hjálpa til við að halda bólum í skefjum. Vörurnar eru ofnæmisprófaðar og erta ekki. Með því að hreinsa húðina daglega og bera á hana krem við hæfi er hægt að hjálpa húðinni að ná jafnvægi og minnka bólur.
Tamarind extract – Hreinsar dauðar húðfrumur af yfirborði húðarinnar og hjálpar húðinni að endurheimta rakajafnvægi.Burdock extract – Kemur jafnvægi á bakteríuflóru húðarinnar. Kemur jafnvægi á fituframleiðslu húðarinnar. Bakteríudrepandi. Zinc PCA – Kemur jafnvægi á fituframleiðslu húðarinnar.
Setjið eina pumpu í lófann og hreinsið andlitið. Skolið af með vatni. Notið andlitsvatn og krem sem hæfir í kjölfarið. Notið bæði kvölds og morgna.