










NAILBERRY On Cloud Nine
Mjólkurhvítt - Milky white Mjólkurhvíti liturinn okkar sannar að minna er meira þegar kemur að nútímalegri handsnyrtingu. Hreinn, fjölhæfur og tímalaus litur sem lyftir nöglunum samstundis. Fallegur og látlaus litur sem vekur örugglega aðdáun hvar sem þú ferð. Eitt lag af þessari léttu formúlu gefur slétta og glansandi áferð sem hvorki kekkjast né springur. Auktu gljáa og endingu með lokalagi af UV Gloss Top Coat og gefðu nöglunum heilbrigt og fallegt útlit!
• 21-free
• Oxygenated
Lúxus naglalökkin okkar úr margverðlaunuðu og eiturefnalausu L’Oxygéné línunni hugsa um framtíðarheilbrigði naglanna með einkaleyfis tækni sem skilar heilbrigðari handsnyrtingu. Við erum stolt af því að vera: • Water permeable
• Vegan
• Certified cruelty free
• Certified Halal
• Gluten free
Nailberry naglalökkin eru hugarsmíð Soniu Hully. Hún ákvað strax í upphafi að gefa engan afslátt, hvorki af heilsunni né hátískunni. Í dag hafa Nailberry naglalökkin öðlast sess sem hátískuvara sem notast er við á tískuvikum í stórborgum. En þú getur líka keypt þau á skemmtilegustu jógastöðunum t.d. í London. Það er fallegt að bera naglalakk sem andar og nærir.
Einföld ráð til að láta naglalakkið endast - Berðu eitt þunnt lag á hverja nögl. Leyfðu grunnlakkinu að þorna alveg í 2–3 mínútur. - Dýfðu burstanum í falalegan Nailberry lit, fjarlægðu umfram efni af burstanum og berðu síðan eitt þunnt lag á hverja nögl. Leyfðu lakkinu að þorna í 2–3 mínútur, berðu síðan annað þunnt lag á hverja nögl og leyfðu því að þorna. - Dýfðu burstanum Nailberry Top Coat , fjarlægðu umfram efni af burstanum og berðu síðan eitt þunnt lag á hverja nögl. Ef þú fylgir öllum þremur skrefunum skaltu leyfa handsnyrtingunni að þorna alveg í 10–15 mínútur. Ráð frá sérfræðingi: Til að flýta fyrir þornunartímanum skaltu setja einn dropa af Dash and Dry Oil á hverja nögl.











