

Lýsi Heilsutvenna 32 skammtar
Heilsutvenna er sett saman með það í huga að styðja við daglega vítamín- og steinefnaþörf Íslendinga. Vítamín og steinefni eru nauðsynleg fyrir vöxt og viðhald heilbrigðs líkama. Á hverri þynnu eru 8 lýsisperlur og 8 fjölvítamínhylki. Lýsisperlurnar innihalda ómega-3 lýsi sem er auðugt af EPA og DHA. Fjölvítamínhylkið inniheldur, auk vítamína, málmsölt og snefilefni.
17 vítamín og steinefni, sojaolía, gelatín (nautgripa), sætuefni (sorbitól sýróp), rakaefni (glýseról), jurtafita, umfangsaukar (bývax), bindiefni (sojalesitín), litarefni (járnoxíð, títandíoxíð).
1 fjölvítamínhylki + 1 lýsisperla á dag. Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um. Vítamín og bætiefni eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða að koma í veg fyrir þá og eiga ekki að koma í stað fjölbreyttrar og hollrar fæðu. Geymist þar sem börn hvorki sjá né ná til. Ábyrgðaraðili: Lýsi hf