


Issay Miyake Le Sel D'Issey EDP
Issey Miyake Le Sel d’Issey Eau de Parfum er kraftmikill og hlýr herrailmur þar sem sjávarþörungar blandast reykelsi, sedrusviði, eikarmosa og amber.
Issey Miyake sækir innblástur sinn gjarnan í náttúruna og er Le Sel d’Issey ferskur og viðarkenndur herrailmur. Innblástur ilmsins kemur frá kraftinum sem verður til þegar sjór og land mætast.Ilmurinn opnast með ferskum saltkeim sem minnir á hafið, ásamt sjávarþörungum sem gefa honum skýran sjávarblæ. Við taka reykelsi og eikarmosi sem bæta við kryddi og dýpt, en sedrusviður og hlýr amber mynda ríkulegan grunn. Útkoman er kraftmikill og hlýr karlilmur þar sem ferskleiki sjávar mætir jarðbundnum viðar- og ambertónum. Le Sel d’Issey Eau de Parfum er sterkari og hlýrri túlkun á upprunalega Le Sel d’Issey Eau de Toilette og hentar vel þeim sem vilja meiri dýpt og endingu í ilminum.
ALCOHOL, AQUA (WATER), PARFUM (FRAGRANCE), TETRAMETHYL ACETYLOCTAHYDRONAPHTHALENES, ACETYL CEDRENE, BUTYL METHOXYDIBENZOYLMETHANE, LINALYL ACETATE, CEDRUS ATLANTICA OIL/EXTRACT, ETHYLHEXYL SALICYLATE, LIMONENE, ALPHA-ISOMETHYL IONONE, LINALOOL, CITRUS LIMON (LEMON) PEEL OIL, CITRUS AURANTIUM BERGAMIA (BERGAMOT) PEEL OIL, PENTAERYTHRITYL TETRA-DI-T-BUTYL HYDROXYHYDROCINNAMATE, VANILLIN, COUMARIN, LAVANDULA OIL/EXTRACT, PINENE, CITRAL, GERANIOL, ROSE KETONES, MENTHA VIRIDIS (SPEARMINT) LEAF OIL, BETA-CARYOPHYLLENE, GERANYL ACETATE, EUGENOL, CARVONE, TERPINOLENE, METHYL 2-OCTYNOATE, TERPINEOL, CI 17200 (RED 33), CI 42090 (BLUE 1), CI 19140 (YELLOW 5).
Úðaðu ilminum til dæmis á háls, úlnliði og innanverða olnboga













