
Guli Miðinn Múltí Vít freyðitöflur
Guli miðinn Múltí Vít er fæðubótarefni með 10 vítamínum sem stuðla meðal annars að eðlilegum orkuefnaskiptum, starfsemi taugakerfisins og eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins. Töflurnar eru með ljúffengu appelsínubragði og leysast auðveldlega upp í vatni.
Guli miðinn Múltí Vít inniheldur 10 vítamín sem styðja við ýmsa mikilvæga starfsemi líkamans. Vítamínin B1, B2, B3, B5, B6, B7 og B12 stuðla að eðlilegum orkuefnaskiptum, en C-vítamín stuðlar að eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins og hjálpar til við að draga úr þreytu og lúa.
B-vítamínin styðja einnig við eðlilega starfsemi taugakerfisins, en C- og E-vítamín stuðla að vernd frumna gegn oxunarálagi. Hver tafla veitir 100% af næringarviðmiðunargildi allra 10 vítamínanna.
Freyðitöflurnar eru með appelsínubragði og auðveldar í notkun – leystu eina töflu upp í glasi af vatni og njóttu.
Sýra (sítrónusýra), sýrustillir (natríumbíkarbónat), umfangsaukar (sorbitól, maíssterkja, maltódextrín), L-askorbínsýra (C-vítamín), bragðefni, rauðrófusafaduft, sætuefni (súkralósi), DL-alfa-tókóferýl asetat (E-vítamín), níasínamíð (B3-vítamín), kalsíum-D-pantótenat (B5-vítamín), pýrídoxínklórhýdrat (B6-vítamín), litarefni (ríbóflavín (B2-vítamín)), þíamínmónónítrat (B1-vítamín), pteroylmonoglutamic acid (fólasín, B9-vítamín), D-bíótín (B7-vítamín), cýanókóbalamín (B12-vítamín).
Ein tafla á dag, leyst upp í glasi af vatni (200 ml).
Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um. Vítamín og bætiefni eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða að koma í veg fyrir þá og eiga ekki að koma í stað fjölbreyttrar og hollrar fæðu. Geymist þar sem börn hvorki sjá né ná til.











