
Gengigel Oral Spray 20ml
Munnsprey sem minnkar bólgur í tannholdi og slímhúðum, flýtir fyrir gróanda, hindrar bakteríuvöxt, gefur raka og myndar verndandi lag yfir sárum eða viðkvæmri slímhúð.
Gengigel Sprey er klínískt prófað Class IIa lækningatæki sem inniheldur hágæða einkaleyfisvarða hýalúronsýru (0,01%). Gengigel er hannað til að flýta fyrir náttúrulegri græðslu slímhúðar, draga úr bólgu og hindra bakteríuvöxt. Sérstaða Gengigel línunnar er að hýalúrónsýran er sérstaklega hönnuð til að henta tannholdinu og rannsóknir sýna að þegar Gengigel er notað með tannholdsmeðferðum getur árangur meðferðanna orðið mun meiri. Einnig hentar Gengigel (ásamt góðri munnhirðu) vel sem forvörn gegn tannholdssjúkdómum. Efnið loðir vel við slímhúðina sem tryggir langvarandi vörn og virkni á viðkvæmum svæðum. Spreyjið hentar vel á bólgnum svæðum sem erfitt er að ná til og einnig sem verndnandi meðferð við munnþurrk.
Hentar vel á svæði sem erfitt er að ná til.
Sodium Hyaluronate, Aqua, Xylitol, Alcohol, PEG 40 Hydrogenated Castor Oil, Sodium Phosphate, Polyvinyl Alcohol, Aroma, Dichlorobenzyl Alcohol, Trisodium Phosphate.
Notist 3-5 x á dag í 3-4 vikur eða þar til einkenni eru horfin. Eitt til tvö sprey á bólgin svæði. Ekki borða né drekka í 30 mínútur á eftir.