
Gengigel Oral Gel 20ml
Munngel sem minnkar bólgur í tannholdi og slímhúðum, flýtir fyrir gróanda, hindrar bakteríuvöxt, gefur raka og myndar verndandi lag yfir sárum eða viðkvæmri slímhúð.
Gengigel Oral Gel er klínískt prófað Class IIa lækningatæki sem inniheldur hágæða einkaleyfisvarða hýalúronsýru (0,2%). Gengigel er hannað til að flýta fyrir náttúrulegri græðslu slímhúðar, draga úr bólgu hindra bakteríuvöxt og lina sársauka í munnholi. Sérstaða Gengigel línunnar er að hýalúrónsýran er sérstaklega hönnuð til að henta tannholdinu og rannsóknir sýna að þegar Gengigel er notað með tannholdsmeðferðum getur árangur meðferðanna orðið mun meiri. Einnig hentar Gengigel (ásamt góðri munnhirðu) vel sem forvörn gegn tannholdssjúkdómum. Efnið loðir vel við slímhúðina sem tryggir langvarandi vörn og virkni á viðkvæmum svæðum. Gelið hentar vel á staðbundin sár og bólgur sem auðvelt er að ná til.
Hentar vel á staðbundin svæði sem auðvelt er að ná til.
Sodium Hyaluronate, Aqua, Xylitol, Cellulose Gum, Alcohol, PEG 40 Hydrogenated Castor Oil, Polyvinyl Alcohol, Carbomer (Polycarbophil) , Dichlorobenzyl Alcohol, Aroma, Sodium Hydroxide, Acid Blue 9 (CI 42090).
Notist 3-5 x á dag í 3-4 vikur eða þar til einkenni eru horfin. Berið gelið á bólgin svæði og nuddið með hreinsum fingri. Ekki borða né drekka í 30 mínútur á eftir.











