
Gengigel First Aid Fluid 50ml
Munnskol sem hentar sérstaklega vel eftir aðgerðir/áverka í munnholi eða við miklum bólgum í slímhúð. Hraðar gróanda, minnkar bólgur í tannholdi og slímhúðum, hindrar bakteríuvöxt, gefur raka og myndar verndandi lag yfir sárum eða viðkvæmri slímhúð.
Gengigel First-Aid er klínískt prófað Class IIa lækningatæki sem inniheldur háan þéttleika af hágæða einkaleyfisvarða hýalúronsýru (0,12%) í fljótandi formi. Formúlan er sérstaklega þróuð fyrir miklar bólgur strax eftir tannúrdrætti, tannplantameðferðir, djúphreinsun tannholds eða skurðaðgerðir í munnholi. Lausnin skolar ekki aðeins svæðið heldur loðir vel við slímhúðina og myndar langvarandi filmu sem dregur hratt úr bólgu og sársauka á fyrstu dögunum eftir aðgerð. Gengigel First-Aid hentar einnig vel gegn bólgusjúkdómum í bráðum fasa t.d. slæmu munnangri eða lichen planus.
Hentar vel eftir aðgerðir og við miklum bólgum/sárum.
Sodium Hyaluronate, Aqua, Peg-400, Xylitol, Propylene glycol, Peg-40 Hydrogenated castor oil, Cellulose gum, PVM/MA Copolymer, Polysorbate 20, Sodium benzoate, Dichlorobenzyl alcohol, Polyvinyl alcohol, Carbomer (Polycarbophil), Sodium phosphate, Trisodium phosphate, Sodium lactate, Disodium EDTA, Glycerophosphocholine, Aroma, Sodium saccharin, Acid Red 33 (Cl 17200).
Notist strax eftir aðgerðir og á meðan græðslu stendur. Skola með 5 mL í 1-2 mínútur í 2-4 x á dag. Ekki borða né drekka í 30 mínúrur á eftir.











