
Dolorin Junior, eþ-stíll 250 mg 10 stk
Dolorin Junior er verkjastillandi og hitalækkandi.
Dolorin Junior er ætlað til meðferðar við vægum til miðlungs miklum verkjum, hálsbólgu (að frátalinni eitlabólgu) og vægum til miðlungs miklum höfuðverk. Dolorin Junior er einnig ætlað til meðferðar við hita sem varir í 3 daga eða skemur og sem meðferð við einkennum kvefs og flensulíkum einkennum.
Dolorin Junior inniheldur virka innihaldsefnið parasetamól Önnur innihaldsefni eru: Fitusýrur, glýserí
Dolorin Junior 250 mg stílar börn (þyngri en 10 kg): Einn 250 mg stíll allt að 4 sinnum á sólarhring. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á sérlyfjaskrá