



ChitoCare Marine Glow Cleanser 120ml
Silkimjúk hreinsimjólk sem sameinar áhrifaríka hreinsun og einstaka mýkt í einu skrefi. Fjarlægir farða, óhreinindi og umfram fitu án þess að þurrka eða raska náttúrulegu rakajafnvægi húðarinnar. Hjálpar til við að varðveita raka, mýkja húðina og stuðla að heilbrigðu yfirbragði.
Marine Glow Cleanser er silkimjúk hreinsimjólk sem fjarlægir farða, óhreinindi og umfram fitu á áhrifaríkan en einstaklega mildan hátt. Kremkennd formúlan hreinsar án þess að þurrka húðina eða raska náttúrulegu rakajafnvægi hennar og skilur hana eftir mjúka, vel nærða og þægilega.
Formúlan sameinar ChitoCare® Repair, sem byggir á íslensku sjávarkítósani, og virk innihaldsefni sem styðja við mýkt og rakajafnvægi húðarinnar. Skvalan viðheldur mýkt, á meðan kollagen og kísill stuðla að sléttari áferð og náttúrulegum ljóma. Saman skilja þau húðina eftir mjúka, slétta og með heilbrigt yfirbragð.
ChitoCare Repair® er einstök einkaleyfisvarin innihaldsefnablanda úr hágæða sjávarkítósani með kraftmikla andoxunarvirkni sem styður við endurnýjun húðarinnar, bætir rakastjórnun, dregur úr sýnilegum merkjum öldrunar og veitir húðinni aukna vernd.
99,5% innihaldsefni af náttúrulegum uppruna
Prófað af húðlæknum
Fyrir hverja er varan
Hreinsimjólkin hentar öllum húðgerðum, þar á meðal viðkvæmri húð. Tilvalin til daglegrar hreinsunar.
Virk innihaldsefni Sjávarkítósan Skvalan Kollagen Kísill Innihaldsefni: Aqua, Squalane, Propanediol, Cetearyl Alcohol, Glycerin, Cocamidopropyl Betaine, Bacillus Ferment, Polysorbate 60, Chitosan, Hydrolyzed Collagen, Silica, Xylityl Sesquicaprylate, Caprylyl Glycol, Cetyl Alcohol, Coco-Glucoside, Glyceryl Oleate, Propylene Glycol, Sclerotium Gum, Pullulan, Lecithin, Hydroxyethylcellulose, Sodium Gluconate, Lactic Acid, Citric Acid, Xanthan Gum, Sodium Benzoate, Tocopherol, Hydrogenated Palm Glycerides Citrate, Parfum
Berið á þurra eða raka húð á andlit og augnsvæði með mjúkum hringlaga hreyfingum. Hreinsið af með blautri bómullarskífu eða skolið af með vatni. Notið kvölds og morgna sem fyrsta skref í rútínunni.











