
Candizol, hylki 150 mg 1 stk
Candizol er notað til að meðhöndla sýkingar af völdum sveppa (í leggöngum) og einnig er hægt að nota það til að stöðva candidasýkingu.
Candizol tilheyrir flokki lyfja sem kallast „sveppalyf“. Virka efnið er flúkónazól.
Candizol er notað til að meðhöndla sýkingar af völdum sveppa (í leggöngum) og einnig er hægt að
nota það til að stöðva candidasýkingu. Gersveppurinn Candida er algengasta orsök sveppasýkinga.
Lyfið má nota til að meðhöndla leggangabólgu af völdum gersveppa (Candida vaginitis) hjá konum
með sögu um gersveppasýkingu sem læknir hefur greint.
Einkenni geta meðal annars verið kláði og stingir í leggöngum og ytri kynfærum.
Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á sérlyfjaskrá