

BLUE LAGOON Skincare Heroes 2026
Gjafasett sem sameinar þrjár af okkar vinsælustu formúlum sem að hreins og næra húðina. Frábær kaup.
Skincare Heroes sameinar þrjár af okkar vinsælustu formúlum sem hreinsa og næra húðina. Settið inniheldur Silica Mud Mask, BL+ The Serum, og BL+ The Cream. Allar formúlurnar byggja á lífvirkum innihaldsefnum Bláa Lónsins og yfir 30 ára húðrannsóknum.
Settið inniheldur: BL+ The Serum (30 ml), Silica Mud Mask (75 ml), BL+ The Cream (5 ml)
ÁVINNINGUR
Settið inniheldur
BL+ The Serum
Öflug formúla sem gefur húðinni góðan raka og bjartara yfirbragð, ásamt því að draga úr öldrunareinkennum húðar.
Silica Mud Mask
Hinn margrómaði hvíti andlitsmaski sem djúphreinsar og styrkir húðina. Gefur frísklegt yfirbragð og dregur úr sýnileika svitahola.
BL+ The Cream
Nærandi og áh[NH9.1]rifaríkt andlitskrem þróað til að gefa húðinni langvarandi raka, koma á jafnvægi og draga úr sýnileika fínna lína.
Lykilefni
BL+ COMPLEX™ örvar nýmyndun kollagens, dregur úr niðurbroti kollagens og styrkir varnarlag húðar.
BL+ SILICA™ - einstakur kísill Bláa Lónsins, hefur djúphreinsandi og náttúrulega leireiginleika sem draga óhreinindi úr húðinni og bæta yfirbragð hennar.
BL+ MICROALGAE™ - örþörungar Bláa Lónsins, hafa nærandi, andoxandi og endurnýjandi eiginleika. Einkaleyfisvarðir örþörungarnir finnast í einstöku vistkerfi Bláa Lónsins en þeir örva, varðveita og vernda kollagenforða húðarinnar.
BL+ MINERALS™ - jarðsjór Bláa Lónsins, endurnærir húðina með nauðsynlegum steinefnasöltum og eykur þannig heildarvirkni formúlunnar.
Öll innihaldsefni
Linkur á BL+ The Serum, Silica Mud Mask og BL+ The Cream
"Fyrir hvern er settið? Skincare Heroes er hannað fyrir alla sem vilja kynnast vinsælustu vörum Blue Lagoon Skin Science og einfaldri en áhrifaríkri húðrútínu. Settið hentar öllum húðgerðum og sameinar djúphreinsun, öfluga meðferð gegn öldrun húðar og langvarandi raka. Hvert er geymsluþol varanna? Eftir að vörurnar hafa verið opnaðar er geymsluþol þeirra sex mánuðir. Til að tryggja gæði varanna skal forðast að þær verði fyrir miklum hitabreytingum, bæði hita og kulda."
• Berið Silica Mud Mask ríkulega jafnt á hreina húð. Forðist augnsvæðið. Látið bíða á húðinni í 5-10 mínútur. Skolið af með volgu vatni. Notið 2-3 sinnum í viku. • Berið BL+ The Serum á hreint andlit og háls. Þrýstið létt inn í húðina. Nýtið allt umfram serum á háls og berið á með léttum strokum upp á við. • Fylgið eftir með BL+ The Cream. Berið á húð í andliti og á hálsi til að læsa inni raka.











