








BLUE LAGOON Aðventudagatal 2026
Aðventudagatal - Holiday 2026 Teldu niður til jóla með aðventudagatali Blue Lagoon Skin Science. Aðventudagatalið inniheldur fjórar vandlega samsettar húðrútínur, eina fyrir hverja viku aðventunnar. Hver húðrútína byggir á BL+ einkaleyfisvörðum lífvirkum innihaldsefnum og yfir 30 árum af vísindum. Dásamleg leið til að staldra við í amstri jólanna og hlúa að sér og húðinni fyrir hátíðirnar. Aðeins í takmörkuðu upplagi.
SETTIÐ INNIHELDUR
SILICA MUD MASK
Hinn margrómaði hvíti andlitsmaski sem djúphreinsar og styrkir húðina. Gefur frísklegt yfirbragð og dregur úr sýnileika svitahola. Hentar öllum húðgerðum.
BL+ CLEANSING BALM
Nærandi hreinsir sem leysir upp farða og óhreinindi og styrkir um leið varnarlag húðar. Skilur húðina eftir endurnærða og ljómandi.
BL+ THE SERUM
Öflug formúla sem gefur húðinni góðan raka og bjartara yfirbragð, ásamt því að draga úr öldrunareinkennum húðar.
BL+ THE CREAM
Einstaklega nærandi og rakagefandi krem sem eykur þéttleika húðar og dregur úr ásýnd fínna lína.
GUA SHA STEINN
Nuddsteinn fyrir andlit, hannaður til að auka blóðflæði, draga úr þrota og örva sogæðakerfið. Húðin verður sléttari og ljómandi.
ALGAE MASK
Nærandi andlitsmaski sem kallar fram náttúrulegan ljóma húðarinnar og dregur úr sýnileika fínna lína og hrukkna.
BL+ EYE CREAM
Háþróað augnkrem sem sléttir, þéttir og verndar viðkvæmt augnsvæðið. Silkimjúkt og nærandi krem sem gengur hratt inn í húðina og veitir endurnýjað og ljómandi yfirbragð.
BL+ LIP RENEWAL MASK
Áhrifarík varameðferð, þróuð til að vinna gegn fínum línum á varasvæði ásamt því að mýkja, slétta og styðja við húðina.
ÁHALD
Áhald fyrir varir til að auðvelda notkun á BL+ Lip Renewal Mask, örva blóðflæði til vara og bæta aðgengi formúlunnar inn í húðina.
Lykilefni BL+ COMPLEX örvar nýmyndun kollagens, dregur úr niðurbroti kollagens og styrkir varnarlag húðarinnar. KÍSILL BLÁA LÓNSINS hefur djúphreinsandi, náttúrulega leireiginleika sem draga óhreinindi úr húðinni og bæta yfirbragð hennar. Kísillinn er lífvirkt innihaldsefni sem gefur Bláa Lóninu sinn einkennandi bláa lit og hefur verndandi og styrkjandi áhrif á náttúrulegt varnarlag húðarinnar. ÖRÞÖRUNGAR BLÁA LÓNSINS hafa nærandi, andoxandi og endurnýjandi eiginleika. Einkaleyfisvarðir blágrænþörungarnir finnast í einstöku vistkerfi Bláa Lónsins en þeir örva, varðveita og vernda kollagenforða húðarinnar. JARÐSJÓR BLÁA LÓNSINS endurnærir húðina með nauðsynlegum steinefnasöltum og eykur þannig heildarvirkni formúlunnar. Sjá öll innihaldsefni á eftirtöldum vörusíðum: Silica Mud Mask BL+ Cleansing Balm BL+ The Serum BL+ The Cream Algae Mask BL+ Eye Cream BL+ Lip Renewal Mask
Vika 1: Hreinsun Berið BL+ Cleansing Balm á þurra húð og nuddið varlega yfir andlit, augu, augnhár og augabrúnir til að leysa upp farða og óhreinindi. Bætið volgu vatni við og skolið síðan vandlega. Fylgið eftir með Silica Mud Mask. Berið ríkulega og jafnt yfir hreina húð og forðist augnsvæðið. Látið bíða á húðinni í 10-15 mínútur. Skolið af með volgu vatni. Notið maskann eftir þörfum eða 2-3 sinnum í viku. Vika 2: Alla daga Berið BL+ The Serum á hreint andlit og háls. Fylgið eftir með BL+ The Cream til að veita húðinni raka, draga úr sýnileika fínna lína og auka þéttleika. Vika 3: Nærandi Berið ríkulegt magn af Algae Mask á hreina húð. Látið bíða á húðinni í 5-10 mínútur. Skolið af með volgu vatni. Notið maskann eftir þörfum eða 2-3 sinnum í viku. Notið Gua Sha steininn á hreina, rakafyllta húð til að örva blóðflæði og draga úr þrota. Nuddið léttilega upp á við. Að lokum, berið lítið magn af BL+ Eye Cream gætilega í kringum augun. Vika 4: Fyrir varir Berið ríkulegt magn af BL+ Lip Renewal Mask á hreinar varir. Notið áhaldið fyrir þægindi og hreinlæti.