
BIOEFFECT Imprinting Hydrogel Mask 6pk
Andlitsmaski sem róar húðina og veitir mikinn og djúpvirkan raka. Sérhannaður til að hámarka virkni EGF prótínsins í BIOEFFECT vörum.
Djúpverkandi og rakagefandi andlitsmaski sem hámarkar virkni EGF
Auktu enn frekar á virkni EGF prótínsins í BIOEFFECT vörum með þessum tvískipta andlitsmaska. Gelmaskinn inniheldur hýalúronsýru og glýserín sem veita djúpan raka og efla hæfni húðarinnar til að viðhalda raka. Imprinting Hydrogel Mask er andlitsmaski í algjörum sérflokki — hann inniheldur aðeins 13 náttúruleg efni sem voru sérvalin í því skyni að hámarka virkni EGF í vörum BIOEFFECT. Öll efnin eru vatnsleysanleg og fyrir vikið eru maskinn að fullu niðurbrjótanlegur. Öflugur rakagjafi sem mýkir, sléttir og þéttir húðina.
EGF er prótín sem hefur mesta virkni í röku umhverfi. Þeim mun lengur sem yfirborð húðarinnar helst rakt, því meiri verða áhrifin. Þegar Imprinting Hydrogel andlitsmaskinn er notaður með BIOEFFECT vörum skapast kjöraðstæður fyrir EGF sem hámarkar áhrif og virkni prótínsins. Þessi einstaki andlitsmaski er frábær viðbót við reglubundna húðumhirðu.
Djúpverkandi og endurnærandi rakagjafi
Örvar varðveislu raka í húðinni
Hámarkar virkni EGF
Kælandi og róandi gelmaski
Tveggja laga andlitsmaski sem er einfaldur í notkun
Vatnsleysanlegur og niðurbrjótanlegur
Hentar öllum húðgerðum
Án olíu, ilmefna, alkóhóls, parabena og glútens
Ofnæmisprófaður
Hýalúronsýra — Efni sem fyrirfinnst náttúrulega í húðinni. Hýalúronsýra gegnir mikilvægu hlutverki við að draga til sín og viðhalda raka auk þess að þétta og jafna húðina. Glýserín — Kraftmikill rakagjafi sem er unninn úr plöntuafurðum. Glýserín dregur til sín raka auk þess að jafna ásýnd og slétta yfirborð húðarinnar. Innihaldsefnalisti WATER (AQUA), GLYCERIN, DIPROPYLENE GLYCOL, 1,2-HEXANEDIOL, CERATONIA SILIQUA (CAROB) GUM, CHONDRUS CRISPUS POWDER, CHONDRUS CRISPUS EXTRACT, SODIUM HYALURONATE, CELLULOSE GUM, SODIUM POLYACRYLATE, PHENOXYETHANOL, SUCROSE, HYDROGENATED POLYDECENE, POTASSIUM CHLORIDE, TRIDECETH-6, DISODIUM EDTA
Notist aðeins útvortis og samkvæmt leiðbeiningum. Hafið samband við húðlækni ef varan veldur ertingu.