



BIOEFFECT EGF Eye Serum + refill
EGF Eye Serum hefur öflug áhrif á ásýnd húðarinnar umhverfis augun enda er það sérstaklega þróað til að vinna á fínum línum, broshrukkum, hrukkum og slappleika. Augnserumið er blandað með EGF úr byggi, hýalúronsýru og hreinu, íslensku vatni til að þétta, slétta og næra húðina á augnsvæðinu.
EGF Eye Serum er nú fáanlegt með áfyllingu. Settið inniheldur tvöfalt magn af þessari vinsælu og áhrifaríku augnvöru.
EGF Eye Serum hefur öflug áhrif á ásýnd húðarinnar umhverfis augun enda er það sérstaklega þróað til að vinna á fínum línum, broshrukkum, hrukkum og slappleika. Augnserumið er blandað með EGF úr byggi, hýalúronsýru og hreinu, íslensku vatni til að þétta, slétta og næra húðina á augnsvæðinu. Á flöskunni er kælandi stálkúla sem er notuð til að dreifa úr formúlunni og hefur á sama tíma einstök áhrif á þrota, þreytumerki og dökka bauga. Við mælum með að nota Imprinting Eye augnmaska á eftir seruminu til að hámarka árangurinn.
WATER (AQUA), GLYCERIN, BUTYLENE GLYCOL, CARBOMER, SODIUM CHLORIDE, PHENOXYETHANOL, SODIUM CITRATE, SODIUM DEHYDROACETATE, SODIUM HYALURONATE, BARLEY (HORDEUM VULGARE) SEED EXTRACT, EGF (BARLEY SH-OLIGOPEPTIDE-1)
Þrýstu létt á hnappinn á botni flöskunnar til að skammta augnserumi og berðu á hreina húð umhverfis augun. Rúllaðu stálkúlunni eftir húðinni og nuddaðu mjúklega með fingurgómunum til að tryggja jafna dreifingu. Láttu ganga inn í húðina áður en farði eða sólarvörn eru borin á andlitið. Til að koma áfyllingarhylkinu fyrir skaltu draga hvíta hylkið út úr botninum á flöskunni. Fjarlægðu lokið af áfyllingunni og smelltu hylkinu inn í flöskuna. Þrýstu varlega þar til þú heyrir smell.











