

Betolvan, filmhtfl 1 mg 105 stk
Fyrirbyggjandi meðferð gegn og meðferð við blóðkornafári (pernicious anaemia) og öðrum kvillum vegna B12-vítamínskorts.
Fyrirbyggjandi meðferð gegn og meðferð við blóðkornafári (pernicious anaemia) og öðrum kvillum vegna B12-vítamínskorts.
1 tafla inniheldur 1 mg af cýanókóbalamín. Hjálparefni: Mannitól
Kartöflusterkja
Forhleypt sterkja
Örkristallaður sellulósi
Magnesíumsterat
Sterínsýra
Pólývinýl alkóhól, vatnsrofið að hluta til
Makrógól
Títantvíoxíð (litarefni E 171)
Rautt járnoxíð (litarefni E 172)
Gult járnoxíð (litarefni E 172)
TalkúmSkammtar Meðferð við skorti: Venjulega 1-2 töflur á dag þar til skorturinn hefur verið leiðréttur að fullu. Síðan viðhaldsskammtur. Ef taugakvilli er staðfestur, eða grunur er um slíkt, skal meðferð vera með stungulyfi. Viðhaldsskammtar/fyrirbyggjandi meðferð: Venjulega 1 tafla á dag. Sérstakir sjúklingahópar Aldraðir sjúklingar Ekki er nauðsynlegt að breyta skömmtum. Sjúklingar með skerta nýrnastarfsemi Yfirleitt er ekki nauðsynlegt að breyta skömmtum. Hjá sjúklingum með alvarlega skerta nýrnastarfsemi á að mæla B12-vítamín í sermi reglulega og minnka skammta ef þess er þörf (sjá kafla 4.4). Sjúklingar með skerta lifrarstarfsemi Ekki hefur verið lagt mat á öryggi og verkun við notkun lyfsins handa sjúklingum með skerta lifrarstarfsemi. Börn Ekki hefur verið sýnt fram á öryggi og verkun Betolvan hjá börnum
Sjá nánari upplýsingar um lyfið á sérlyfjaskrá



