Beint í efni
Leita

Rútínuvika Apótekarans

Haustið markar ákveðin tímamót. Rútínan tekur við og við finnum aftur taktinn í hversdeginum. Það er því góður tími til að huga að eigin heilsu og koma góðum venjum aftur inn í daginn.

Í tilefni þess höldum við Rútínuviku Apótekarans dagana 24.-28. ágúst, þar sem við ætlum að beina sjónum að þáttum sem styðja við góða og heilsusamlega rútínu.

Komum hreyfingunni aftur af stað

Þegar rútínan tekur við er gott að byrja rólega og finna hreyfingu sem passar inn í þinn hversdag. Hvort sem það er göngutúr, ræktin, hlaup eða hjólatúr skiptir mestu máli að finna taktinn aftur, eitt skref í einu.

Góð rútína byggist á mörgum þáttum sem vinna saman. Samhliða reglulegri hreyfingu er mikilvægt að huga að fjölbreyttu mataræði, nægum vökva, hvíld og þeim næringarefnum sem líkaminn þarf á að halda.

Hvatning til þín að byrja

Apótekarinn og World Class taka höndum saman í Rútínuvikunni. Vikupassi í World Class fylgir öllum kaupum yfir 3.000 kr. hjá Apótekaranum.

​Með samstarfinu viljum við hvetja landsmenn til að huga að eigin heilsu og vellíðan og gera það aðeins auðveldara að koma hreyfingunni aftur inn í hversdaginn.

Góð rútína þarf hvorki að vera flókin né fullkomin. Litlu skrefin skipta máli og það sem skiptir mestu er að finna venjur sem þú getur viðhaldið til lengri tíma.

Rútínuvikan er rétt að byrja.

Við erum með þér í liði.
Kveðja,
Apótekarinn