Harpa Kára mælir með
Uppáhalds snyrtivörur Hörpu Kára
Harpa Káradóttir hefur starfað sem förðunarfræðingur til 18 ára, hún lauk námi frá Make-Up Designory í Los Angeles með diplóma í kvikmynda- og sjónvarpsförðun. Hún valdi sínar uppáhalds vörur hjá Apótekaranum


Vörur sem Harpa mælir með
Bobbi Brown Corrector - Ein af mínum uppáhalds förðunarvörum síðustu 15 árin. Þessi vara litaleiðréttir bláma undir augum og veitir augnsvæðina frísklegra yfirbragð á svip stundu. Kremuð áferðin blandast vel inn í húðina og hentar öllum aldri. Vöruna á ég til í flestum litum og nota hana nánast á alla mína kúnna.
Tom Ford Black Orchid - Þennan ilm hef ég notað síðustu 20 ár. Hann er frekar djúpur og þykkur en hefur hentað mér ótrúlega vel. Í gamla daga var ég bankandi á glugga í Tom Ford verslunum í Mílanó á Ítalíu óskandi eftir að fá að kaupa þennan ilm svo það gladdi mig mikið þegar hann fékkst loks á íslandi.
BIOEFFECT Icelandic Water Mist - Æðislegt raka sprey sem ég mæli með fyrir alla. Spreyið veitir húðinni samstundis raka og virkilega fallega áferð. Mæli með spreyinu undir og yfir makeup og í töskuna til þess að lífga upp á húðina yfir daginn. Þessi vara er líka tilvalin fyrir karla og þau sem nota ekki förðunarvörur, spreyið nærir og kælir húðina og getur þannig dregið úr þurrkublettum og ertingu.

Harpa mælir einnig með
Max Factor Glow Framer - Nýjung í kittinu mínu sem ég hef notað rosalega mikið upp á síðkastið. Ljómakrem sem gefur húðinni mildan og fallegan lit og ljóma. Hentar vel eitt og sér, undir farða, blandað við farða eða á háls og bringu fyrir frísklegt og fágað sólkysst útlit.
Shiseido Vital Perfection Eye Mask - Augnmaski sem gerir allt sem þú vilt að augnmaski gerir, hálfgerð kraftaverka vara. Maskinn inniheldur retinól svo hann er líklega ætlað 30 ára og eldri því hann inniheldur töluverða virkni. Maskinn veitir húðinni í kringum augun algjört rakabúst, dregur úr þrota og fínum línum. Ómótstæðileg vara í mínum augum. Fyrir betri tilefni sé ég ávalt til þess að ég eigi hann til fyrir mig sjálfa og mína kúnna.
Armani Eye Tint Liquid Shadow - Æðislegur kremaður augnskuggi sem er fljótlegur og auðveldur í notkun. Formúlan tollir vel á og blandast eins og draumur. Væri til í að eiga alla liti af þessari týpu.Tilvalin vara fyrir þau sem vilja fljótlega og auðvelda förðun.
Max Factor Facefinity Pro Blur Setting Powder - Fínmalað bleikt púður sem hentar fullkomlega til þess að birta undir augun og miðju andlitsins.




