Beint í efni

Sólarvörn. Af hverju skiptir hún máli – og hvernig notar þú hana rétt?

Sólarvörn er það helsta sem við höfum til að verjast skaðlegum geilsum sólarinnar. Hún ver okkur ekki einungis gegn sólbruna heldur er þetta okkar besta vörn gegn húðkrabbameini. Einnig er notkun sólarvarnar eitt besta fyrirbyggjandi ráðið sem við höfum gegn öldrun húðarinnar.

Sigrún Arna Jónasdóttir
Lyfjafræðingur

Húðlæknar mæla með sólarvörn með styrkleika 50+. Ástæða þess að mælt er með svo háum styrk er að við berum ekki alltaf alveg rétt á okkur sólarvörnina. Það er til dæmis algengt að fólk sé að drífa sig og henni því ekki dreift jafnt yfir alla húðina. Þar að leiðandi skilar 50+ sólarvörn besta árangri við verndun húðarinnar. Ef notuð er sólavörn með lægri styrkleika, er mikilvægt að passa vel upp á notkun á vörninni og passa að henni sé dreift jafnt yfir alla húðina til að sá styrkleiki skili tilætluðum árangri.

Hvenær er best að nota sólarvörn?

Best er að nota sólarvörn alla daga, þá sérstaklega á andlit, háls og jafnvel á handabök. Ef það er mikil sól, er mælt með að bera sólarvörn á allan líkamann á 2 klst. fresti og strax eftir sundferðir og annað busl í vatni, til að forðast sólbruna. Dagkrem eða aðrar vörur sem innihalda sólarvörn veita vörn að hluta til, en mælt er með að nota sólarvörn yfir þessi krem fyrir bestu vörnina. Hægt er að nota sólarvörn í sprey formi yfir farða þannig farðinn eyðileggist ekki.

Eigum við að nota sólarvörn yfir veturinn?

Já, mælt er með daglegri notkun á sólarvörn, líka hérna á Íslandi. Geislar sólarinnar ná í gegnum ský, þannig þó að það sé þungbúið, er mælt með að notuð sé sólarvörn á þá líkamshluta, sem ekki eru huldnir með fatnaði. Ef stunduð er útivist í snjó, er mikilvægt að bera vel á sig sólarvörn, þar sem sólin endurspeglast af snjónum og getur valdið skaðlegum bruna á húðinni.

Við mælum með

  • DECUBAL Sun lotion SPF50+ 180ml

    DECUBAL Sun lotion SPF50+ 180ml

    Núverandi verð: 6698 kr.
  • Eucerin Sun Kids SPF50+ Spray 200ml

    Eucerin Sun Kids SPF50+ Spray 200ml

    Núverandi verð: 3598 kr.
  • LA ROCHE-POSAY Anthelios UVmune Fluid SPF50+ 50ml

    LA ROCHE-POSAY Anthelios UVmune Fluid SPF50+ 50ml

    Núverandi verð: 5798 kr.
  • Bondi Sands SC SPF50+ FF Face Mist 60g

    Bondi Sands SC SPF50+ FF Face Mist 60g

    Núverandi verð: 3298 kr.

Sólarvörn er okkar besta vörn gegn húðkrabbameini og öldrun húðarinar. Mikilvægt er að nota hana daglega, líka hér á landi og jafnvel á allt að 2 klst. fresti í mikilli sól.

Tengdar vörur

  • BIOTHERM Waterlover Hydrating Sun Milk SPF30 200ml

    BIOTHERM Waterlover Hydrating Sun Milk SPF30 200ml

    Núverandi verð: 5198 kr.
  • LA MER The Uv 50  Protecting Fluid 50ml

    LA MER The Uv 50 Protecting Fluid 50ml

    Núverandi verð: 21498 kr.
  • CLARINS Sun Body Cream SPF50+ 150ml

    CLARINS Sun Body Cream SPF50+ 150ml

    Núverandi verð: 5898 kr.
  • expert

    SHISEIDO Sun Protector Face Cream SPF30 50ml

    Núverandi verð: 5698 kr.
  • Elizabeth Arden 8 hour Sun Defence SPF 50

    Elizabeth Arden 8 hour Sun Defence SPF 50

    Núverandi verð: 4298 kr.