Liðheilsa - af hverju skiptir hún máli?
Liðirnir tengja saman bein líkamans og eru lykillinn að því að við getum hreyft okkur eðlilega. Stífir og stirðir liðir geta valdið verkjum og skertri hreyfigetu og hafa því mikil áhrif á daglegt líf.
Margir finna fyrir meiri óþægindum í liðum á veturna. Ástæðan fyrir því er að kuldi og minni hreyfing getur haft áhrif á liðamótin, bólga eykst og liðirnir verða ekki jafn hreyfanlegir. Það er því sérstaklega mikilvægt að passa upp á liðheilsuna á þessum árstíma.


Hvað er til ráða?
Hreyfing er mjög mikilvæg fyrir góða liðheilsu. Það skiptir máli hvaða hreyfingu við veljum, ef liðirnir eru slæmir borgar sig ekki að fara beint í æfingar með mikilli ákefð. Það er betra að byrja á rólegum æfingum eins og göngutúrum, sundi og teygjum. Góður svefn skiptir líka máli, ef hann er slæmur getur það valdið auknum verkjum og bólgum í liðum.
Matarræði er mjög mikilvægt fyrir liðheilsu þar sem að það hefur áhrif á bólgur í líkamanum. Dæmi um matarræði sem minnkar bólgur er miðjarðarhafs-matarræði, grænmetisfæði og trefjaríkt matarræði. Aftur á móti ætti að forðast matarræði sem eykur bólgur, það er til dæmis unnar matvörur, sykur og rautt kjöt.
Til eru fæðubótaefni sem geta komið að góðum notum. Glúkósamín, kodrótín og MSM eru dæmi um fæðubótaefni sem draga úr óþægindum í liðum og viðhalda brjóski. Kollagen er byggingarefni í húð, sinum, beinum og fleiri vefjum. Kollagen er einnig talið geta minnkað bólgur og stutt við góða liðheilsu. Önnur ráð eru að passa vel upp á að taka inn D-vítamín og omega-3 fitusýrur. Það er eitthvað sem að við Íslendingar þurfum að passa sérstaklega upp á á veturna.
Í apótekum eru til ýmsar gerðir af samsettum fæðubótaefnum fyrir liði. Það er mikið til og getur verið flókið að átta sig á hvað hentar best fyrir þig, það er því um að gera að leita ráða hjá starfsfólki apóteksins.




