Beint í efni

Hin heilaga þrenning í húðumhirðu

Í starfi mínu sem húðlæknir fæ ég oft spurninguna frá bæði konum og körlum hvaða húðvörur á ég að nota til að viðhalda húðinni heilbrigðri og koma í veg fyrir ótímabæra öldrun, þ.e.a.s. fínar línur, hrukkur, litabreytingar og slappleika. Oftast eru þetta einstaklingar sem eru farnir að nálgast fertugt og sem hafa þá kannski ekki gert neitt sérstaklega mikið fyrir húðina í gegnum tíðina en langar að byrja að hugsa vel um hana. Þá byrja ég oft á því að fara í gegnum grunnatriðin í húðumhirðu sem eru að hreinsa húðina kvölds og morgna og næra húðina með góðum raka daglega en þar þarf að velja það rakakrem sem hentar best húðgerð viðkomandi. Einnig er ráðlegt að koma inn einhverri virkni og þá er best að byrja á undirstöðunni eða á því sem ég kalla hina heilögu þrenningu. Hin heilaga þrenning eru vörur sem allir ættu að koma inn í sína húðrútínu sem eru að spá í að vernda húðina, fyrirbyggja öldrunarbreytingar og viðhalda heilbrigði hennar. Þetta eru þær húðvörur sem eru með sterkustu rannsóknirnar á bak við sig og hafa margsannað gildi sitt.

Jenna Huld Eysteinsdóttir
Sérfræðingur í Húð-og kynsjúkdómalækningum

Hin heilaga þrenning er sem sagt sólarvörn, sem allir geta notað, og svo andoxunarefni og A vítamín krem sem eru oft í daglegu tali kölluð retinól. Það geta ekki allir notað andoxunarefni og retinól, t.d. þeir sem eru með viðkvæma húð eða bólgusjúkdóm í andliti eins og rósroða. Ef svo er þá hvet ég viðkomandi að leita til húðlækna til að fá frekari ráðleggingar, t.d. er hægt að prófa sig áfram með glycolic (AHA) sýru kremin þá í staðin.

Sólarvörn – verndar og fyrirbyggir

Allir geta notað sólarvörn það er bara að vinda sér í málið að finna þá sólarvörn sem hentar og sem betur fer í dag er mikið úrval af góðum sólarvörnum fyrir andlitið. Við mælum með SPF þætti 30-50 fyrir andlit og gjarnan sólarvörn sem inniheldur steinefni eins og titanium díoxíð eða zink oxíð. Þær varnir verja okkur betur gegn kulda og vindi en þær sem eru kemískar. Eitt besta kuldakremið sem til er fyrir útivistina! Muna svo að bera á sig tvisvar á dag ef útivera allan daginn, eða á ca 4-6 klukkustunda fresti. Sólin er aðal skaðvaldurinn þegar kemur að ótímabærum öldrunarbreytingum í húðinni, eins og tapi á þéttleika, litabreytingum, æðaslitum, hrukkum og fínum línum. Ef sólarvörn er rétt notuð þá getur hún komið í veg fyrir 80-90% af þessum breytingum.

Mælum með

  • Eucerin Sun SPF30 Fluid Photoaging Control 50ml

    Eucerin Sun SPF30 Fluid Photoaging Control 50ml

    Núverandi verð: 2998 kr.
  • DECUBAL Sun lotion SPF50+ 180ml

    DECUBAL Sun lotion SPF50+ 180ml

    Núverandi verð: 6698 kr.
  • Pharmaceris S Sun SPF50 Duo Active Wet & Dry 200ml

    Pharmaceris S Sun SPF50 Duo Active Wet & Dry 200ml

    Núverandi verð: 4698 kr.
  • LA ROCHE-POSAY Anthelios UVmune Fluid SPF50+ 50ml

    LA ROCHE-POSAY Anthelios UVmune Fluid SPF50+ 50ml

    Núverandi verð: 5798 kr.

A vítamín krem (retinól) - uppbyggjandi

Hér erum við að tala um hetjuna í húðumhirðu. Það er ekki að ástæðulausu að retinól kremin eru vinsæl og mikið talað og skrifað um þau í dag þar sem á bak við efnið er fjöldinn allur af klínískum rannsóknum sem sanna það, að retínól er eitt fárra efna sem búa yfir margþættum húðbætandi eiginleikum og öflugasta efnið í húðvörum til að hægja á framkomu öldrunarmerkja á húðinni. Það er strax um 25 ára aldurinn að það fer að hægja á kollagen framleiðslu húðarinnar en kollagen er eitt helsta uppbygginarefni húðarinnar. Til að hægja á þessu ferli og örva kollagenframleiðsluna kemur retinólið sterkt inn. Ef þú notar retinól reglulega verður áferð húðarinnar þar af leiðandi bjartari, sléttari, fínar línur grynnka og litabreytingar verða minna áberandi. Þar sem retínól örvar náttúrulega framleiðslu húðarinnar á kollageni fer húðin smám saman að verða þéttari og þar af leiðandi stinnari. Retínól minnkar einnig fituframleiðslu í fitukirtlum og fækkar fílapenslum með þeirri jákvæðu hliðarverkun, að svitaholur verða minna áberandi.

Mælum með

  • NeoStrata Skin Active Potent Retinol Complex 30ml

    NeoStrata Skin Active Potent Retinol Complex 30ml

    Núverandi verð: 11698 kr.
  • The Ordinary Retinol 0.5% In Squalane 30ml

    The Ordinary Retinol 0.5% In Squalane 30ml

    Núverandi verð: 2298 kr.
  • CeraVe Resurfacing Retinol Serum 30ml

    CeraVe Resurfacing Retinol Serum 30ml

    Núverandi verð: 4898 kr.
  • Pharmaceris T Pure Retinol 0,3 Adult Acne 40g

    Pharmaceris T Pure Retinol 0,3 Adult Acne 40g

    Núverandi verð: 3998 kr.

Retinól er sterkt og getur verið ertandi fyrir viðkvæma húð þannig það eru ekki allir sem geta notað það. Þá er ekki mælt með notkun retinóls á meðgöngu eða meðan á brjóstagjöf stendur. Mjög mikilvægt er að byrja hægt og trappa notkunina varlega upp, byrja kannski bara tvö kvöld í viku. Ef það þolist vel geturðu aukið notkunina og borið á þig retínóíð annað hvert kvöld í þrjár til fjórar vikur. Á fimmtu viku ættirðu að geta notað retínóíð á hverju kvöldi en þetta fer þó allt eftir því hvað húðin þín þolir. Ef húðin þín er mjög viðkvæm er mælt með því að byrja á meðferðinni einu sinni til tvisvar sinnum í viku og láta þrjár til fjórar vikur líða á milli þess sem þú eykur notkunina. Formúluna skal bera á hreina húð og í þunnu lagi en mikilvægt er að það komi ekki nálægt augum og munnvikum, þar sem húðin þar er mjög viðkvæm. Þar sem erting, á borð við roða, sviða eða brunatilfinningu, getur komið upp í húðinni með notkun retínóíða getur reynst gott að bera rakakrem á húðina þrjátíu mínútum fyrir meðferðina og þrjátíu mínútum eftir hana. Mikilvægt er að hafa í huga, að ekki er æskilegt að nota retínóíð á sama tíma og húðvörur sem innihalda salicylic-sýru eða benzoyl peroxide.

Ég tala um retinól hér en þetta er í raun hópur A vítamín skyldra efna og bera ólík nöfn eins og retinól palmytate (vægast), retinól (miðlungssterkt) og retinaldehyde (sterkt). Sterkustu kremin sem innihalda retinóíð sýru, eins og Adapalene (Differin) og Tretinoin, eru lyfseðilsskyld.

Og enn og aftur að sólarvörninni sem er lang mikilvægust af þessari heilagri þrenningu! Ef þú notar retinól eða önnur A vítamínkrem er það enn mikilvægara að bera á sig sólarvörn á hverjum morgni þar sem þessi efni auka ljósnæmi húðarinnar. Notaðu sólarvörn með SPF 30 að lágmarki, helst 50+

Andoxunarefni- verndar og fyrirbyggir

Með því að nota andoxunarefni á morgnana þá eflum við enn frekar varnir húðarinnar og bætum áhrif sólarvarnarinnar. Á hverjum degi verður húðin fyrir stöðugri geislun, hvort sem það er af völdum sólargeisla eða til dæmis snjalltækja. Umhverfismengun, á borð við útblástur ökutækja, myndar einnig sindurefni, sem leggjast á húð okkar. Okkar eigin líkami hlutleysir þessi sindurefni í húðinni en ef það verður mikil myndun þessa sindurefna, eins og frá sólinni, þá náum við ekki að hlutleysa þau og þau valda skaða í húðfrumunum. Þessi skaði kemur svo hægt og rólega, en örugglega, fram sem fínar línur, aukinn slappleiki og ójöfn áferð. Til þess að efla varnir okkar gegn þessum sindurefnum getum við eflt þetta kerfi með því að bera andoxunarefni á húðina. Ýmis vítamín, á borð við C- og E-vítamín, hafa góð andoxandi áhrif og finna má þau í ávöxtum og grænmeti. Það hefur þó færst í aukana að nota andoxunarefni í staðbundnum meðferðum og hafa húðvörur, sem innihalda andoxunarefni, notið mikilla vinsælda undanfarin ár. Algengustu andoxunarefnin í húðvörum eru C- og E-vítamín, níasín og resveratról.

Það getur tekið svolítinn tíma að finna besta andoxunarefnið fyrir þig þar sem þau vinna öll á ólíkan hátt og mismunandi hvað hentar svo þinni húðgerð. C vítamín er þekktasta andoxunarefnið og mikil rannsóknarvinna liggur að baki þess. Það örvar kollagen- og elastínframleiðslu húðarinnar, svo hún verður þéttari, fyrirbyggir framkomu öldrunarmerkja á húðinni og vinnur sérlega vel gegn litamisfellum. E vítamín er oft notað með C vítamíni þar sem það vinnur vel með því og nær aðeins dýpra í húðina. Undanfarið hefur níasín, eða B3-vítamín, notið mikilla vinsælda í húðvörum. Það bætir áferð húðarinnar og húðtón en einnig hefur það róandi og bólgueyðandi áhrif á húðina. Níasín hefur því gjarnan verið notað af fólki með rósroða eða bólur. Annað andoxunarefni vert að nefna er svo Resveratról, sem er aðal andoxunarefnið í rauðvíni, en það er borið á húðina á kvöldin þar sem það örvar viðgerðarferli húðarinnar yfir nóttina.

Mælum með

  • Pharmaceris A Esensilix Concentrate Vitamin E 30ml

    Pharmaceris A Esensilix Concentrate Vitamin E 30ml

    Núverandi verð: 4698 kr.
  • 1% 30ml

    The Ordinary Niacinamide 10% + Zinc

    Núverandi verð: 1998 kr.
  • LA ROCHE-POSAY MelaB3 Serum 30ml

    LA ROCHE-POSAY MelaB3 Serum 30ml

    Núverandi verð: 10998 kr.
  • The Ordinary Resveratrol 3% + Ferulic Acid 30ml

    The Ordinary Resveratrol 3% + Ferulic Acid 30ml

    Núverandi verð: 2698 kr.

Hvernig notarðu svo þessa heilugu þrenningu saman?

Flest andoxunarefni vinna vel saman og má nota þau daglega. Á morgnana er tilvalið að nota C-vítamín eða níasín en þú berð formúluna á hreina húðina. E-vítamín má nota kvölds og morgna en því er gjarnan blandað við C-vítamín til að auka stöðugleika þess síðarnefnda Þar á eftir notarðu andlitskrem og svo sólarvörn. Á kvöldin er resveratról góður valkostur, þar sem það hefur róandi áhrif á húðina og hjálpar viðgerðarferli hennar. Retínóíða skal nota eftir því sem húðin þolir, en ágætt er að byrja á að nota það eitt kvöld í viku og auka notkunina hægt á tveggja vikna fresti. Þó andoxunarefni auki vissulega varnir húðarinnar gegn sólargeislum að einhverju leiti koma þau ekki í stað sólarvarnar og er því ávallt mælt með notkun sólarvarnar, að lágmarki SPF 30, daglega.

Hvar finnurðu svo vörur sem innihalda þessi efni?

Það eru fjöldi vörumerkja sem innihalda bæði andoxunarefni og retinól. Gæði varanna er mismunandi en um að gera að prófa sig áfram og sjá hvað hentar þinni húð. SkinCeuticals er t.d. mjög fínt vörumerki sem er með góðan grunn undir retinólið sem ertir þá lítið húðina. Önnur vörumerki sem kosta minna eru t.d. La Roche Posay og Neostrata og svo eru enn ódýrari vörumerki eins og Pharmaceris og The Ordinary.