Beint í efni

Félagsleg heilsa – undirstaða að heilbrigðum vinnustað

Þegar talað er um heilsu hugsum við oft fyrst um líkamlega eða andlega heilsu. En þriðji þátturinn er ekki síður mikilvægur, en það er félagsleg heilsa. Í stuttu máli snýst félagsleg heilsa um gæði tengsla við annað fólk og hvort við upplifum öryggi, virðingu og heilbrigð samskipti.

Á vinnustöðum hefur félagsleg heilsa sérstaklega mikið vægi. Þar verjum við stórum hluta dagsins og tengslin sem myndast í vinnunni hafa áhrif á líðan, frammistöðu og heilsu til lengri tíma. Rannsóknir hafa auk þess sýnt fram á að ef starfsfólk upplifir öryggi og traust á vinnustaðnum, er vellíðan meiri meðal starfsfólks og framleiðnin betri.

Ragnhildur Bjarkadóttir
Sálfræðingur og einn eigandi Auðnast

Félagsleg heilsa á vinnustað er þó ekki eitthvað sem verður til af sjálfu sér. Hún byggir á daglegum samskiptum fólks, litlum ákvörðunum í hegðun og því hvernig við mætum hverju öðru í samstarfi. Þar getur hver og einn lagt sitt af mörkum. Til dæmis með því að tileinka sér eftirfarandi þætti.

  • Sýndu alltaf virðingu í samskiptum. Hlustaðu á sjónarmið annarra og leyfðu fólki að ljúka máli áður en þú svarar (enn betra að bíða jafnvel í smá stund með að svara því oft koma mikilvægustu atriðin síðast).
  • Komdu upplýsingum í viðeigandi farveg. Ef eitthvað kemur upp er gagnlegt að staldra við og meta hver á að fá upplýsingarnar og hvar er best að ræða málið. Þannig verða samskipti heiðarleg og uppbyggileg.
  • Leggðu þitt af mörkum til að skapa góðan starfsanda. Lítil atriði geta skipt öllu, t.d. það að heilsa þegar þú mætir til vinnu, þakka fyrir aðstoð eða bjóða fram aðstoð þegar starfsfólk þarf á stuðningi að halda. Þessi einföldu atriði geta haft ótrúlega jákvæð áhrif á andrúmsloftið.
  • Skapaðu öryggi í umræðu. Hlustaðu af athygli, gefðu fólki rými til að tjá sig og taktu vel á móti því sem sagt er. Þá verður auðveldara fyrir alla að segja sína skoðun, spyrja spurninga og ræða mistök á uppbyggilegan hátt.

Félagsleg heilsa á vinnustað er sameiginlegt verkefni. Þegar við leggjum okkur fram við að rækta góð samskipti, sýna hverju öðru virðingu og taka ábyrgð á eigin framlagi í samstarfi, skapast vinnuumhverfi sem styður bæði vellíðan fólks og árangur vinnustaðar