Beint í efni

Augnþurrkur yfir vetrarmánuðina – hvað er til ráða?

Augnþurrkur er algengt vandamál og eitthvað sem margir upplifa á lífsleiðinni. Einkenni geta verið margvísleg, svo sem sviði, kláði, sandkennd tilfinning, roði og augnþreyta.

Áslaug Svava Svavarsdóttir
Lyfjafræðingur

Orsök augnþurrks er ekki endilega sú að augun framleiði of lítið af tárum, heldur getur hún einnig stafað af ójafnvægi í samsetningu táravökvans. Margir þættir geta haft áhrif á þetta jafnvægi, þar á meðal mikil skjánotkun, notkun snertilinsa, aldur, hormónabreytingar, ákveðin lyf, ofnæmi, vökvaskortur og ýmsir umhverfisþættir.

Í þessari grein er fjallað nánar um hvers vegna augnþurrkur eykst oft yfir vetrarmánuðina og hvernig hægt er að draga úr óþægindum og styðja við augnheilsu.

Af hverju versnar augnþurrkur yfir veturinn?

Yfir vetrartímann er loftið oft kalt og þurrt, sem getur raskað stöðugleika táravökvans og aukið uppgufun hans. Þegar táravökvinn nær ekki að halda yfirborði augans nægilega röku aukast líkur á augnþurrki og óþægindum í augum.

Duga augndropar einir og sér?

Augndropar eru oft fyrsta úrræðið þegar augnþurrkur gerir vart við sig og geta veitt skjótan bata. Þeir duga þó ekki alltaf einir og sér þegar kuldi, vindur og þurrt inniloft eru ríkjandi. Þar sem augndropar vinna fyrst og fremst á einkennunum, en ekki endilega á undirliggjandi orsökum augnþurrks, getur verið skynsamlegt að styðja augnheilsu einnig innan frá, sérstaklega yfir vetrartímann. Við slíkar aðstæður getur verið gagnlegt að líta til næringarefna á borð við Omega-3 fitusýrur ásamt A- og D-vítamíni.

Hlutverk Omega-3 fitusýra í augnheilsu

Rannsóknir benda til þess að Omega-3 fitusýrur, einkum EPA og DHA, gegni mikilvægu hlutverki í heilbrigði augna. Þær hafa bólguminnkandi áhrif og talið er að þær styðji við starfsemi Meibomian-kirtlanna, sem framleiða fitulag táravökvans. Þetta fitulag gegnir lykilhlutverki í því að draga úr uppgufun táravökvans og hjálpa augunum að haldast rökum lengur.

A- og D-vítamín – mikilvæg fyrir augun

A- og D-vítamín gegna einnig lykilhlutverki í augnheilsu. D-vítamín styður við eðlilega starfsemi ónæmiskerfisins og heilbrigði slímhúða, þar á meðal slímhúðar á yfirborði augans. Það getur hjálpað til við að draga úr bólgum í augum og augnlokum og haft jákvæð áhrif á starfsemi tárakirtla.

A-vítamín er mikilvægt fyrir yfirborð augans og stuðlar að eðlilegri endurnýjun frumna í hornhimnu og slímhúð. Það hjálpar til við að viðhalda eðlilegum raka og gegnir lykilhlutverki í sjón og augnheilsu almennt.

Ávinningur sem nær lengra en augun

Ávinningur Omega-3, A- og D-vítamíns nær þó langt út fyrir augnheilsu. Þessi næringarefni styðja einnig við heilbrigði slímhúða, almenna vellíðan og eðlilega starfsemi varnarkerfis líkamans. Regluleg inntaka getur þannig veitt heildrænan stuðning sem gagnast líkamanum á margvíslegan hátt.

Hlutverk Omega-3 fitusýra í augnheilsu

  • Thealoz Duo 10ml - Gervitár/augndropar

    Thealoz Duo 10ml - Gervitár/augndropar

    Núverandi verð: 3498 kr.
  • SOLARAY D-Vítamín 30mcg 1200iu100stk

    SOLARAY D-Vítamín 30mcg 1200iu100stk

    Núverandi verð: 2198 kr.
  • Dropi Þorskalýsi 170ml

    Dropi Þorskalýsi 170ml

    Núverandi verð: 4598 kr.
  • NOW Omega 3 1000mg 100stk

    NOW Omega 3 1000mg 100stk

    Núverandi verð: 2098 kr.

Einföld ráð sem geta hjálpað

Til viðbótar við fæðubótarefni geta einfaldar daglegar venjur haft jákvæð áhrif á augnþurrk og stuðlað að betri augnheilsu:

  • Heitir bakstrar á augnlok
  • Minni skjátími dregur úr álagi á augun
  • Gott rakastig í innilofti, til dæmis með rakatæki
  • Næg vökvainntaka yfir daginn

Samantekt

Augnþurrkur er algengur fylgifiskur vetrarins þegar kuldi og þurrt loft hafa áhrif á jafnvægi táravökvans. Með því að sameina augndropa, stuðning innan frá með Omega-3, A- og D-vítamíni og góðar daglegar venjur er hægt að draga úr óþægindum og styðja við eðlilega augnheilsu yfir vetrarmánuðina.

Tengdar vörur

  • Lýsi Omega 3 120stk

    Lýsi Omega 3 120stk

    Núverandi verð: 2698 kr.
  • Cleye augndr 0,12 mg/ml 10 ml

    Cleye augndr 0,12 mg/ml 10 ml

    Núverandi verð: 3798 kr.
  • Monkids Fiskiolía Omega-3 Sítrónu 60stk

    Monkids Fiskiolía Omega-3 Sítrónu 60stk

    Núverandi verð: 3298 kr.
  • HYLO Evo Tears Augndropar 3ml

    HYLO Evo Tears Augndropar 3ml

    Núverandi verð: 4698 kr.
  • NOW Omega 3-6-9 1000mg 100stk

    NOW Omega 3-6-9 1000mg 100stk

    Núverandi verð: 2798 kr.