Vera hraust
Mér finnst besta tilfinning í heimi að vera sterk og er stolt af vöðvunum mínum sem tók mig mörg ár að þjálfa og byggja upp. Hraustleiki fyrir mér er að vera orkumikil, getað gert það sem mig langar til þegar ég vil, finna ekki fyrir daglegum verkjum í líkamanum, vera bein í baki, sofa vel og hafa góða matarlyst.
Hugsa skýrt
Í miðri lyftu verður núvitundin algjör og þetta er frábær leið til að hreinsa hugann. Eftir góða lyftingaæfingu verða hin verkefni dagsins einfaldari og trúin á sjálfri þér töluvert meiri.
Sofa betur
Þungar lyftingar æfingar hafa áhrif á taugakerfið og þreyta líkamann. Svefninn er grunn undirstaða góðrar heilsu að mínu mati og svefninn hefur aldrei verið betri síðan eftir að ég fór að stunda kraftlyftingar. Prófaðu og finndu muninn.
Eldast vel
Kraftlyftingar stuðla að sterkari líkama og sterkari beinum og vinna því gegn öldrun. Með lyftingunum erum við því að koma í veg fyrir vöðvarýrnun og beinþynningu. Besta dæmið er 84 ára gamall afi minn sem lyftir lóðum nokkrum sinnum í viku, hann er í þrusuformi og beinn í baki! Ætli kraftlyftingar séu ekki hið besta yngingarmeðal?