Beint í efni
Leita

Apótekarinn í símanum

Nýtt vefapp Apótekarans mun leysa gamla appið af hólmi 1.október og þá verður appið ekki lengi í boði í App store og Google Play. Einfalt er að sækja nýtt app sem mun bjóða upp á enn betra vöruúrval, hraðari uppfærslur og tekur minna pláss í símanum þínum.

Nálgastu leiðbeiningar hér fyrir neðan og sæktu Apótekaraappið.

Uppsetning fyrir Iphone í Safari

  1. Opnaðu vefsíðu Apótekarans í Safari
  2. Ýttu á þrjá punkta neðst til hægri á skjánum
  3. Ýttu á deila/share-táknið (ferningur með ör upp úr)
  4. Skrunaðu niður og veldu „Bæta á heimaskjá" (Add to Home Screen)
  5. Staðfestu með því að ýta á „Bæta við" efst í hægra horninu
  6. Appið birtist núna á heimaskjánum þínum — opnaðu það þaðan eins og hvert annað app

Ábending: Ef þú finnur ekki „Bæta á heimaskjá" í listanum, reyndu að ýta á „Breyta aðgerðum" neðst og bæta valkostinum við.

Uppsetning fyrir Iphone í Chrome

  1. Opnaðu vefsíðu Apótekarans í Chrome
  2. Ýttu á deila/share-táknið (ferningur með ör upp úr efst til hægri)
  3. Ýttu á „View More“ og veldu „Bæta á heimaskjá“ (Add to Home Screen)
  4. Staðfestu með því að ýta á „Bæta við“ eða „Add“ efst í hægra horninu
  5. Appið birtist núna á heimaskjánum þínum — opnaðu það þaðan eins og hvert annað app

Ábending: Ef þú finnur ekki „Bæta á heimaskjá" í listanum, reyndu að ýta á „Breyta aðgerðum" neðst og bæta valkostinum við.

Uppsetning fyrir Android

  1. Opnaðu vefsíðu Apótekarans í Chrome
  2. Ýttu á þriggja punkta valmyndina efst í hægra horninu
  3. Veldu „Install and create shortcut"
  4. Staðfestu með því að ýta á „install“
  5. Appið birtist núna á heimaskjánum og í appalistanum þínum

Ábending: Chrome sýnir oft sjálfkrafa smábendingu neðst á skjánum sem býður upp á uppsetningu beint — þá er nóg að ýta á hana.

Apótekarinn í símanum - Apótekarinn