


Nasogen, nefúði 0,5 mg/ml 10 ml
Lyfið er ætlað til skammtíma meðferðar við stíflu í nefi, t.d. vegna kvefs.
Virka efnið í Nasogen 0,5 mg/ml nefúða er xylometazolin hýdróklóríð, sem er efni sem minnkar þrota
í slímhúðum í nefi og hálsi og auðveldar sjúklingum með kvef að anda í gegnum nefið.
Xylometazolin veldur almennt ekki ertingu í slímhúð, jafnvel hjá sjúklingum með mjög viðkvæma
slímhúð.
- Virka innihaldsefnið er xylometazolin hýdróklóríð. - 1 ml af lausn inniheldur 0,5 mg af xylometazolin hýdróklóríði. - Önnur innihaldsefni eru: Sítrónusýrueinhýdrat, natríumsítrattvíhýdrat, glýseról 85% og vatn fyrir stungulyf.
Notið lyfið alltaf eins og læknirinn eða lyfjafræðingur hefur sagt til um. Ef ekki er ljóst hvernig nota á lyfið skal leita upplýsinga hjá lækninum eða lyfjafræðingi. Ráðlagður skammtur er: Börn 2-10 ára: 1 úðun (0,07 ml) í hvora nös, eftir þörfum, mest þrisvar á dag. Eftir notkun lyfsins verður að bíða í a.m.k. 8 klst. áður en næsti skammtur er notaður. Lyfið má nota mest 7 daga í senn. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á sérlyfjaskrá