
ChitoCare Anti-Ag.Rep.Serum+Face Cream
Pakkinn samanstendur af 50 ml ChitoCare Beauty Face Cream og 30 ml ChitoCare Beauty Anti-Aging Repair Serum.
Pakkinn samanstendur af 50 ml ChitoCare Beauty Face Cream og 30 ml ChitoCare Beauty Anti-Aging Repair Serum.
CHITOCARE BEAUTY FACE CREAM
Dag- og næturkremið er einstök samsetning náttúrulegra afurða úr Norður-Atlantshafi. Kremið ver húðina, er öflugur rakagjafi, eykur teygjanleika og sléttir yfirborð húðarinnar. Kremið inniheldur SPF 15 sólarvörn og mikilvæg andoxunarefni sem vernda húðina gegn skaðlegum umhverfisþáttum, m.a. útfjólubláum geislum sólar og bláu ljósi frá tölvu- og snjalltækjaskjám. Þessi vörn varðveitir æskuljóma húðarinnar og ver hana fyrir ertingu og ótímabærum skaða.
CHITOCARE BEAUTY ANTI-AGING REPAIR SERUM
ChitoCare Beauty Anti-Aging Repair Serum inniheldur lífvirka efnið kítósan úr hafinu við Íslandsstrendur og hýalúrunsýru sem dregur úr fínum línum og öldrunarmerkjum af völdum áhrifa eins og mengunar og streitu.
Kítósan er náttúrulegt undur úr hafinu sem ver húðina þína, dregur úr roða og pirringi, viðheldur raka og gefur húðinni silkimjúka áferð. Eiginleikar kítósans eru meðal annars græðandi áhrif auk þess að vera bakteríudrepandi og öflug vernd fyrir húðina.
Anti-Aging Repair Serum frá ChitoCare Beauty endurnærir húðina og gefur henni mjúka og unglega áferð.
Berið mjúklega á andlit og háls. Anti-Aging Repair Serum frá ChitoCare Beauty er tilvalið til að nota að morgni og kvöldi eða eftir því sem þörf krefur.