Um Apótekarann

Apótekarinn er eitt sterkasta vörumerki landsins á apótekamarkaði með 27 apótek um allt land. Apótekarinn er dótturfélag Lyf og heilsu sem rekur einnig gleraugnaverslanirnar Augastað og Gamla apótekið. Apótekarar eru hjartað í okkar fyrirtæki og fagmennskan ávallt í fyrirrúmi.

Apótekin okkar

Apótekarinn rekur 27 verslanir um land allt

Verslanir og afgreiðslutímar

Mannauður og vinnustaðurinn

Við erum fyrst og fremst apótek sem lætur fólki líða betur. Hjá Apótekaranum starfar sérfræðmenntað fólk og ráðgjafar í heilsu. Okkur er umhugað um að aðstoða viðskiptavini okkar og láta starfsfólki okkar líða vel. Því ef það lætur fólki ekki líða betur þá gerum við það ekki. Þetta leiðarljós gildir jafnt inn á við og út.

Þjónusta í Apótekaranum

Apótekarinn býður upp á fjölbreytta þjónustu um allt land.

Styrkir og samfélagsleg ábyrgð

Apótekarinn styður árlega við fjölmörg félaga- og sjúklingasamtök sem vinna að heilsutengdum málefnum.
Við leggjum áherslu á að taka þátt í verkefnum sem efla heilbrigði, vellíðan og samfélagslega ábyrgð.

Í upphafi hvers árs er ákveðið hvaða félög og samtök við vinnum með og styðjum. Stuðningur getur verið veittur með ýmsum hætti, allt eftir þörfum og verkefnum hverju sinni.

Umsóknarferli:
Við tökum einungis á móti umsóknum í gegnum formlegt umsóknarferli.
Vinsamlega athugið:

  • Styrkbeiðnum er ekki svarað í síma.
  • Afgreiðsla umsókna getur tekið allt að 14 daga.
  • Eingöngu er haft samband við umsækjendur sem hljóta styrk